Færsluflokkur: Dægurmál

Eigum við ekki að skoða allt??

Nú þegar slitastjórn Glitnis kærir fyrrverandi stjórn í Bandaríkjunum en ekki hér á landi, þeir hafa ekki manndóm í sér að höfða málið hér á land. Eigum við þá ekki að opna allar dósirnar t.d. Birna Einarsdóttir bankastóri Íslandsbanki er með tugi milljóna sem voru þurrkaðar út og Össur ráðherra var í SPRON og seldi rétt fyrir hrun hvers vegna er hann ekki skoðaður. Eða á bara að skoða suma  en ekki alla? Hvers vegna eru sumir verndaðir en aðrir ekki?
mbl.is Slitastjórn með blaðamannafund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er verið að spara á réttum stöðum?

Mér finnst það alveg frábært að þessi stjórn fólksins reynir að spara hjá sér svo kemur alltaf spurning hvar er hún að spara. Fellst þessi sparnaður ráðuneyta að reka skúringarkonuna?

Hvernig væri að byrja að spara hjá öllum þessum gæðingum ríkisflokkana sem koma inn sem ráðgjafar í hinu og þessu án þess að auglýsa sérstaklega? Hvað er mikil kostnaður við allt þetta aukafólk sem hefur ekkert að gera þar nema að vera á lista klíkunnar.

Fellst þessi sparnaður að losa sig við óþarfa einstaklinga sem eru ekki í réttum flokki? og helst t.d. á móti ESB aðild? 


mbl.is 350 milljóna sparnaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland síðustu 8 árin!

Er þetta ekki dæmi um Ísland síðustu 8 ár. Stjórn og eigendur fóru yfir fyrirtækið með drullugu skónum og fá allt sem þeir vilja sama hvað og hvernig fyrirtækinu vegnar.

Eru ekki allir yfirmenn og framkvæmdarstjórar ráðnir á vegum stjórnar og þeir hafa ráðið einstaklinga sem segja bara já við þá annars eru þeir reknir. Er þetta ekki í raun sú rotnun sem við eigum við að stríða.


mbl.is Hætti á eigin forsendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona á að gera það!

Hollenski bankinn ABN Amro þarf að greiða 500 milljónir dala til bandaríska stjórnvalda vegna peningaþvætti og að aðstoða banka og viðskiptavini í lönd sem eru á svörtum lista.

Svona á að sýna að þeir óttast ekki þessa gráðugu bankamenn. Það þarf að taka á þeim með ákveðni og festu og láta þá ekki komast upp með nein leikaraskap. Eins og Sigurður er að gera núna við sérstakan saksóknara nú er Sigurður farin að gera kröfur til hans. Í raun á að láta bresku lögregluna handtaka hann og senda til Íslands.


mbl.is Gert að greiða sekt fyrir peningaþvætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maðurinn með sama nafn og lit á kúk er...

... fallinn í Bretlandi. Ekki segja mér það að við þurfum að fara og bera kall kúkinn út því ekki vill hann fara sjálfviljugur. Eigum við ekki að safna í eina vél og aðstoða hann að flytja frá nr. 10
mbl.is Íhaldsmenn fengu 306 þingsæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ER GÆSLUVARÐHALDIÐ AUGLÝSINGASKRUM?

Þessi fræga gæsluvarðhald yfir tveimur kaupþingsmönnum er hún auglýsingaskrum?

Ef við lesum hvað sérstakur saksóknari segir: "Enn sé óvíst um hvort formleg ákæra verður gefin út á hendur Hreiðari og Magnúsi".

Síðan kemur "Hreiðar Már var boðaður til skýrslutöku í gærmorgun og mætti hann í húsakynni saksóknarans sjálfviljugur. Skýrslutöku lauk um hádegi og var Hreiðari Má þá tilkynnt að hann væri handtekinn. Hann var síðan í skýrslutöku í gærkvöldi og aftur í morgun hjá embætti sérstaks saksóknara".

Mér finnst vera mikill flumbrugangur á þessu og eins og þeir hafa ekkert í höndunum nema þreifingar á einhverju. Síðan kemur tilkynning til Sigurðar að flýta heimkomu vegna skýrslutöku það er alveg óljóst að hann fer líka í gæsluvarðhald.

Það er nú bara hægt að óska eftir að Breska lögreglan sendir hann heim en þá aðeins ef þeir hafa öruggt mál.  En best er að taka alla samtímis en ekki í bútum og gera það heiðarlega vera með formlega handtöku með ósk um gæsluvarðhald en ekki boða menn í skýrslutöku og handtaka þar.

Ef þeir verða ekki kærðir hvað mun tvímenningarnir kæra ríkið fyrir háa upphæð?

 


mbl.is Kaupþingsmenn í gæsluvarðhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers erum við að sækja um ESB???

Fyrir hvað stendur ESB? Jú ég hef alltaf talið að það stæði fyrir einingu Evrópu, sem dæmi þá sagði Adolf Hitler í Mein Kampf vol II „Europe state" vildi gera Evrópu svipaða og BNA. Þannig að gera Evrópu að einni einingu er ekki ný af nálinni hún tókst (að einhverju leiti) en er mjög veik. Sjáum nú vandamál Grikkja hvar er ESB núna? Þótt að þjóðverjar hafi að lokum veit velyrði fyrir stuðningi þá eru samt 57% þeirra sem telja það sé rangt. En þeim finnst það ekki rangt að stjórna öðrum (eða hafa áhrif á) löndum í gegnum ESB. Er ESB ekki bara með heimsyfirráða hugsun frá gamla tímanum, sem fellur um sjálft sig með tímanum?

Er ekki ESB á rangri leið átti það bara ekki að vera fríverslunarsvæði en ekki reyna að steypa þessum löndum í eina heild. Sem dæmi að á NAFTA svæðinu þá hefur orðið 33% veltuaukning á milli þeirra landa en ESB er aðeins með 8%. Þannig að það er ekki spennandi kostur að fara á evrusvæðið, reyndar er það skref niður á við.


mbl.is Þjóðverjar vilja ekki hjálpa Grikkjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ég að missa af einhverju?

Hvað er þetta með þessa stíflueyða er fólk eitthvað að misskilja þetta. Það á ekki að drekka það heldur til að losa um stíflur í röri.

 

 

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/04/26/drakk_stiflueydi_i_verslun/


Hættuleg lög ESB

Það er greinilegt að ESB setur bara lög til að vernda einhverjar verksmiðjur í Evrópu án þess að huga að hvort einhver skaði ber að.

Nú hafa rannsóknir á vegur ITIS stofnunarinnar í Sviss bent á að sparperur eru ekki eins skaðlausar. Því manneskja verður fyrir fimmtíuföldum geislun frá sparperum en venjulegri glóperu. Þessar sparperur gætu valdið tauga- og vöðvaskaða sem svo aftur getur valdið hjartsláttartruflunum. Og auk þess hefur komið fram í annarri rannsókn að sparperur eru með 25% meiri kvikasilfur en glóperur.

Það eru sett allskonar verndarlög á vegum ESB bara til að vernda eigin framleiðslu án þess að huga að örygginu. Þetta fer að minna ótrúlega á tímabil Stalíns í Rússlandi „Allt fyrir flokkinn, hann er númer 1, 2 og 3 annað má bara eiga sig!"

 


mbl.is Hættuleg geislun frá sparperum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þingmenn vanhæfir?

Ég fer að hallast á það að allir þingmenn séu vanhæfir! Þeir setja jú lögin og eftir þeim fer þjóðfélagið og hvað hafa þeir afrekað HREINLEGA EKKI NEITT. Síðan kemur Atli Gíslason formaður þingmannanefndar og vill ekki tjá sig um hvort landsdómur verði skipaður eru þeir alltaf að hugsa um eigin hag en ekki þjóðfélagsins. Í raun þurfum við að setja Rannsóknarnefnd um Alþingi og störf þess.

Þegar þjóðfélagið féll á vakt Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks þá eru ennþá 3 ráðherrar sem voru í þeirri stjórn og eru ennþá í stjórn og það eru: Jóhanna, Össur og Kristján. Ég vil gera það að kröfu að þeir sjái nú sómann sinn í því og fari úr stjórninni. Er þetta pakk ekki með sömu ráðin og var þá að sópa öllu undir stól og gera ekki neitt?


mbl.is Landsdómur kallaður saman?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband