Færsluflokkur: Dægurmál

Íslenska viðskiptamódelið alveg frábært módel eða heimskir spilarar?

Þessi kaup Framtakssjóðs Íslands á eignarhaldsfélaginu Vestia af Landsbankanum er alveg stórfuruleg. Hún líkist helst 2007 hugsun eða viðskiptamódel með skakka mynd.

  • Fyrst selur Landsbankinn Vestia á 19,5 milljarða til Framtakssjóðsins
  • Síðan kaupir Landsbankinn 30% hluti í Framtakssjóðnum á 18. milljarða greitt á nokkrum árum "Samhliða sölu Landsbankans á Vestia til Framtakssjóðsins skuldbatt bankinn sig til að kaupa þrjátíu prósenta hlut í sjóðnum. Kaupverðið nemur átján milljörðum króna og greiðist á næstu þremur árum. Framtakssjóðurinn er svipaður öðrum fjárfestingarsjóðum að því leyti að hann er lokaður og kallar eftir nýju hlutafé þegar hann kaupir eignir. Við sölu eigna greiðir hann þeim jafnharðan söluandvirðið til baka sem lögðu honum til fé". (fréttablaðið, bls 8,21. ágúst 2010)
  • Mismunur er að framtakssjóðurinn kaupir öll þessi fyrirtæki á 1.5 milljarð
Er þetta í raun íslenska viðskiptamódelið? Hvernig væri að selja þessi fyrirtæki á venjulegum markaði mynd það bara ekki koma betur út? Er ekki í raun að vera að afhenda þessi fyrirtæki bara frítt yfir eitthvað borð.
mbl.is Framtakssjóður kaupir Vestia
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þörf breyting eða bara sama gamla góða KLÍKAN

Er það ekki málið að gamla góða KLÍKAN er bara að koma að sínum manni inn. Fyrst ræður núverandi stjórnarklíka inn sinn mann sem stjórnarformaður sem hækkar sín laun úr 220.000 í rúmlega 1. milljón. Síðan heyrum við í honum að það þurfi að lækka launin í fyrirtækinu (örugglega ekki sín). Og núna vill þessi klíka ráða nýjan forstjóra mér skal ekki undra að hann hafi kosið réttan flokk til að fá starfið. Er núna ekki verið að hugsa um að spara í þessu fyrirtæki?

Er Orkuveitan ekki risi á brauðfótum? Og eina sem þessi drullu klíka hugsa um er að maka krókinn fyrir vini sína til að tryggja þeim góð laun, án þess að hugsa nokkuð um fyrirtækið. Er hér ekki skökk hugsun því meira sem stjórnmáladruslurnar fara inní fyrirtæki því meira hrakar fyrirtækjunum. Þar sem þeir hugsa fyrst um eru stöðuveitingar án auglýsinga og koma vinum vel fyrir. 


mbl.is Helgi Þór forstjóri OR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Setjum ríkisstjórnina í rannsókn!!!

Er ekki komin tími til að setja alla ríkisstjórnina í rannsókn!  Því fyrr því betra, ef ráðherrar hafa hvorki heyrt, séð né vita ekki eða finna ekki hlutina þá er eitthvað mikið að. Í tvö ár höfum við verið á sama stað og stöndum þar ennþá. Eini ráðherrann sem hefur gert eitthvað er Ragna hinir getum við sent á hauganna með glöðu geði.
mbl.is Upplýsti yfirmenn sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt markmið

Ég er búinn að komast af því að ég þarf nýtt og öflugt markmið í lífinu. Það fyrsta sem ég tók eftir í mínu lífi er, hvað dagurinn slitnar mikið í sundur með því að fara á fætur á morgnanna. Ég auglýsi hér með eftir vinnu þar sem ég slít ekki daginn svona mikið í sundur, besta starfið væri að hugsa í rúminu. Og það væri sko stórkostleg hugsun í lagi...

Þegar ég var búinn að velta fyrir mér hvað það væri stórmannlega gott fyrir þjóðfélagið að ég yrði bara upp í rúmi sá ég ekki nema frétt um hinn trénaða Evrópurisa. Nú er þrýst á að setja á okkur viðskiptaþvinganir vegna veiða okkar á Makríl. Það er alveg merkilegt hversu margir, bæði þessir trénuðu Evrópurisi og Hafró, skulu ekki fattað það að fiskurinn syndir ekki eftir þjóðfánum né verður alltaf á sama stað. Fiskurinn fer nefnilega þangað sem hans kjöraðstæður eru og hann lifir best í þetta er bara einföld staðreynd.


Búdda lifir og lifir

Ef lögreglan í Japan hefur ekki ruðst inn á heimilið, þá hefði hann geta orðið elsti maður allra tíma og gæti hafa orðið þrjú til fjögur hundruð ára. En hvað með alla hina sem eru komnir yfir hundraðið eru þeir kannski líka í Búdda heimi?
mbl.is Sá „elsti" hafði verið látinn í 30 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Ísland með mesta feilspor í okkar sögu...

Er þetta síðasti fullveldisdagurinn sem við höldum? Það má með sanni segja að þetta er okkar mesti óheilladagur að eina sem þessir labbakútar vilja er að taka frá okkur fullveldið og þá á allt að bjargast. 

ESB er risi á brauðfótum, sem dæmi að veltuaukning milli landi í ESB er aðeins 8% á meðan NAFTA viðskiptasamningurinn hefur skilað 35%. Eina sem hlýst í ESB er að allt vald fer þangað annað ekki.

Til að koma okkur aftur á sporið þarf þessi stjórn að vinna samtaka af því að koma fyrirtækjunum á sporið. ESB mun ekki hjálpa til þess, þeir vilja aðeins fá auðlindirnar.


mbl.is „Heilladagur fyrir Ísland“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður nokkur hvítflippi látinn sæta ábyrð?

Verður nokkuð af þessum hvítflippum látinn sæta ábyrgð? Er ekki verðið hörðum höndum að reyna eftir mætti að þvo þeim eins og hægt er. Síðan má litli karlinn bara sætta sig við það og látinn borga brúsann ef hann er ekki farinn á hausinn!

Allavega er hann Ólafur bissnesrefur að undirbúa slíkan þvott og ekki veitir af fyrir aumingja karlinn því nóg er hann drullugur fyrir.


mbl.is „Braut engin lög“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viljum við VEGATOLL?

Er það þetta sem við viljum setja bara vegatoll í kringum Reykjavík en standa svo í stórframkvæmdum á landsbyggðinni og þar er allt frítt! Á þá bara ekki að vera vegatollur um allt land sem er lágmarkskrafa. Það virðist sem þessi ríkisstjórn geti ekki forgangsraðað fjármununum!  Sem dæmi er  80% Reykjanesbrautin nú þegar orðin tvöföld.

Það virðist alltaf hægt að gera göng eins og Héðinsfjarðagöngin þar sem 50 fasteignir eru, en ekki hægt að forgangsraðað á svæðið þar sem vel yfir 50% af íbúum landsins búa. Er þetta ekki gott dæmi um pólitík. Þeir sem stjórna þessum fjármunum hljóta að geta forgangsraðað þessu fjármagni betur.

 

 

http://visir.is/ags-bannar-rikinu-ad-taka-lan-i-vegagerd/article/2010489693824

Hvar er lýðræðið?

Það er eins og lýðræðið er bara orð til að tala um á tyllidögum, en er í raun ekki virkt. Allar þessar útstrikanir virðast ekki hafa neinn áhrif því þessir flokkar eru aðeins að hugsa um sig og sín sæti.

Það er því mjög skemmtilegt að sjá að sá sem var mest strikaður út hjá Besta flokknum Einar Örn Benediktsson ræðir mikið við Þann sem mest var strikaður út hjá Samfylkingunni Dagur B. Eggertsson. Síðan heyrir maður að innan Samfylkingarinnar er ekki talið stætt á annað en Dagur yrði að fara, bæði vegna stuðnings stórra fyrirtæki og það mikla tap á fylgi.


mbl.is Gísli var oftast strikaður út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fífla og aulaflokkurinn nær völdum

Ég fer að halda að þeir sem búa í Reykjavík eigi við alvarlega heilabilun að stríða með því að kjósa flokk sem hefur aulaskap á stefnuskrá. Reykjavík þarf að því að halda að þeir sem stjórna borginni séu með fulla fimm og taki sig alvarlega og haldi sjó því nóg gengur á. Ég hef aldrei séð annars eins fífla og aulaflokk og íbúar Reykjavíkur voru laglega teknir í rassgatið af þessum stefnulausu vitleysingum.

Ég ætla bara að vona að hinir erlendu lánadrottnar Reykjavíkurborgar gjaldfæri ekki lánin vegna þess að þeir treysta ekki þeim sem stjórna að þeir standa ekki við sínar skuldbindingar.


mbl.is Viðræður halda áfram á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband