Færsluflokkur: Dægurmál

Hrein skilaboð

93% af þeim sem kusu sögðu NEI!!!! Hvað getur það verið betri skilaboð.
mbl.is Úrslit ekki fyrr en á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Týndi hlekkurinn fann hin rétta stað!

Já það er rétt ágætu íslendingar að Steingervingurinn Ida var ekki týndi hlekkur apa og manns. Því vísindamenn fundu að á hægra fæti stóð „Samfylking" og þeirri vinstri „Vinstri Grænir." Nú er Ida búinn að fá samastað sem er ríkisstjórn Íslands. Allar gerðir þessara stjórna minna helst á hugsun vanþróaðar mannapa en ekki rökhugsandi manneskju. Spurning er eigum við ekki að senda stjórnina á safn til sýnis hún aflar þá einhverra tekna.
mbl.is Ida ekki týndi hlekkurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég ætla að taka ákvörðun fyrir þig!!!!

Er það ekki stór furðulegt hversu margar þjóðir eru tilbúnar að taka ákvörðun fyrir aðra þjóð eða þjóðir. Þjóðir sem kunna og vilja nýta sýna sjávarafurðir vel og skynsamlega þá spretta aðrar þjóðir upp sem hafa jafnvel eyðilagt sýna auðlindir, vilja núna vanda um fyrir þeim sem hafa nýtt hana vel. Hvers vegna eigum við ekki að nýta okkar auðlindir eins best og við getum og veiða hvali?
mbl.is Ekki samkomulag um hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver mun sýna Íslandi áhuga...

... einir tólf aðilar sýna áhuga á að kaupa knattspyrnufélagið Portsmouth. Ef ein klikkaðasta ríkisstjórn íslandssögunar heldur áfram á þessari braut. Hver mun þá sýna Íslandi áhuga til kaups??? Við getum velt því fyrir okkur ef ríkisstjórnin berst fyrir því að greiða hæðstu vexti í Bretlandi, hvernig er þá málum háttað með önnur lán sem ríkið er með???
mbl.is Tólf aðilar sýna Portsmouth áhuga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heppni eða óheppni

Það með sanni segja að þetta er maður árssins, var sá heppnasti og síðan sá óheppnasti. Keyrði á raflínustaur slapp ómeiddur þótt að raflínustaurinn féll til jarðar. Síðan þurfti hann að kasta af sér vatni og var svo einstaklega hittinn að hitta á opna raflínu sem var reyndar hans óhapp að hann lést.
mbl.is Kastaði af sér vatni á raflínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er stjórnin að berja hausnum við stein?

Er þessi stjórn að berja hausnum við stein? Þessar óformlegu viðræður eru bara til að komast hjá þjóðaratkvæðisgreiðslu. Eigum við að láta bjóða okkur það að einhverjar flatlýs eru alltaf að reyna að taka okkur í ras.... .

Það er ekki verið að hugsa um þjóðarhag! Svona gerðir eru aðför að lýðræðinu en sumir virðast ekki vita hvað orðið lýðræði er eða var.


mbl.is Án samráðs við stjórnarandstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að tipla á tánum

Eigum við að láta fyrirtæki skuldsettu útrásarvíkingana bara vera áfram í þeirra höndum? Þessi fyrirtæki hafa verið afskrifuð í svo stórum tölum að það mætti reka Háskóla Íslands með myndarbrag. Síðan kemur í ljós að bestir til að stjórna þeim eru þeir sem áttu það áður! Hér hlýtur að vera einhver brandari á ferð.

Það er rétt hjá Lilju Mósesdóttir að við eigum að hætta að tipla á tánum en hvað hafa ríkisstjórnin gert en einmitt það. Þau hafa verið að tipla á tánum í kringum þetta lið í meira en ár það eina sem þau hafa gert er sótt um ESB og samið um Icesave.

Ef maður á að taka þetta lið á Alþingi alvarlega þá verða þau að fara að vinna fyrir sínum launum og verja sína þjóð. Annars getum við sagt að við höfum 63 flatlýs á launum sem gera ekkert.


mbl.is Hætta að tipla á tánum í kringum kröfuhafana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta mynd af stjórninni?

Náðst hefur alveg frábær mynd af ríkisstjórninni. Hver hefði trúað því að slík mynd myndi nást?

 

Ríkisstjórnin? Er ekki líka von að þjóðfélagið sé eins og það er!


Siðferðislegt hrun

Það er nú hægt að tala um Siðferðislegt hrun við lestur á þessari grein. Í dag er ég hættur að skilja orðið „Siðferði" sérstaklegt í samhengi við orðið banki eða fjárfestingarfélag. Hér á árum áður var orðið BANKI = traust og öryggi, núna er það komið í = gróðabrask og mafíustarfssemi í mínum huga.

Þrátt fyrir alla þá þúsundum milljarða sem Bandaríkjastjórn hefur ausið í þessa gróðahýdd sem virðist að einhverju leyti vera botnlaus. Þá greiði þeir sé út bónusa eins og ekkert sé sjálfsagðara. Þeir sjá sér ekki sóma í því að skila einhverju af því fjármunum sem þeir fengu af skattfénu. Í raun ætti ríkisstjórnir að krefjast þess.

 


mbl.is Kaupaukar upp um 17% í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta ekki tákn

Aðeins með því að lesa fyrirsögnina, þá dettur maður í hug „þetta líkist ríkisstjórninni" sem fór að verja Breta og Hollendinga í staðin fyrir sitt eigið land. Greyin þau voru orðin svo von góðærinu, hvernig eiga þau að geta lifað án þeirra! Eigum við bara ekki að senda hana á þessa eyju og láta hana vera þar?


mbl.is Lentu á rangri Kanaríeyju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband