Færsluflokkur: Spaugilegt

Málsgreinar úr nokkrum minningargreinum sem birts hafa í Morgunblaðinu

Í tiltekt hjá mér fann ég blað þar sem einhver nafnlaus hefur tekið saman nokkrar málsgreinar úr minningargreinum. Þar sem ný vika er að hefjast fannst mér tilvalið að láta það fljóta hér áður en það fer í ruslið.

„Gönguferð þeirra varð styttri en menn vonuðu. Banvænn sjúkdómur beið hennar bak við stein og sló hana fljótt til jarðar".

„Hún hafði það sterka skapgerð að smávegis rigningarsuddi setti hana ekki úr jafnvægi".

„Hann var sannur Íslendingur og dó 17. júni".

„Þrátt fyrir góða greind gekk hún aldrei í kvenfélag".

„Það er löngu vitað mál að bestu og skemmtilegustu vinina eignast maður í lúðrasveitum".

„Hann skrapp úr vinnunni til að fara í þrekprófun í Hjartavernd, en kom þaðan liðið lík".

„Ég bið þann sem lífið gaf að hugga, styrkja og bæta aðstandendum skaðannn".

„Tók hann fráfall konu sinnar mjög nærri sér barnanna vegna".

„Þar voru m.a. María Rögnvaldsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir frá Folafæti. Enda þótt María væri þá hálfslæm í fæti lék hún við hvern sinn fingur".

„Helga lést svo þennan dag kl. 4. Helga hafði ætlað að eyða þessum degi í annað".

„Í dag kveðjum við kæran samstarfsmann og félaga. Hann tók sér tveggja daga frí til að kveðja þennan heim".

„Hann giftist eftirlifandi eiginkonu sinni og átu þau tvö börn".

„Og má segja að ekki setti hún svo skál með tvíböku að borð að ekki stafaði af því mýkt og listfengi".

„Orð þessi eru skrifuð til að flytja Sveini (líkinu) kveðju og þakkir frá tengdafóli hans og ekki síður frá tengdamóður hans, þótt nú nálgist 20. árið frá fráfalli hennar".

„Hún bjó manni sínum gott heimili og ól honum 9 hraust börn, þar af tvö á sjómannadaginn".

„Ágústa giftist ekki og eignaðist ekki börn í venjulegum skilningi þess orðs".

„Á þessum fjölbreytta lífsferli sínum kynntist Guðjón mörgum mönnum af ýmsum þjóðernum, þ.m.t. Indíánum og Kínverjum. Hann lærði tungumál þeirra að meira og minna leyti, einkum þó ensku og norðurlandamálin".


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband