Færsluflokkur: Dægurmál

Furðulegt ráðingaferli hjá Ásahreppi

Er þetta lýðræðið í dag!

Ásahreppur auglýsti eftir sveitarstjóra 19 sóttu um og þar sem Valtýr sem var áður sveitarstjóri hjá Bláskógabyggð þá var hann ráðinn en hinir ekki virtir viðlits. Ráðningaferlið hér á landi virðist ekki vera upp á marga fiska minnir helst á "vinasamfélag", þar sem besti vinur minn er bestur í starfið.

Ráðningaferli þarf að vera upp á borði og einstaklingar skoðaðir en ekki bara þessi er flottur og hinir mega eiga sig. Ef þetta á að vera svona þá væri best að ráðningaferli væri í gegnum opinbera stofnun. Dæmi eins og Ríkiskaup eru með útboð, því getur einhver af þessum stofnun séð um að auglýsa þessar stöður og skoða þá einstaklinga sem sækja um.

Hinir 18 sem ekki voru virtir viðlits er spurning hvort þeir/þær geti kært þetta og fengið miskabætur, þar sem ekki rétt/vel var staðið að ráðningu sveitarstjóra.

 

 

 


mbl.is Aðeins einn af 19 umsækjendum í viðtal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin og 101 klíkan í Reykjavík

Þegar skoðað eru 10 efstu frambjóðendur á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þá kemur merkilegt út að 5 af þeim búa í 101 Reykjavík. Ef Samfylkingin fengi t.d. 7 af 23 Borgarfulltrúum þá væru 4 sem búa í 101 Reykjavík, 2 sem búa í 104 Reykjavík og 1 sem býr í 105 Reykjavík. Önnur hverfi komast ekki að, nema kjósa aðra flokka.

Það er furðulegt að flokkur sem vill stýra í Reykjavík og stýrir í dag, kemur að mestum hluta frá einu og sama póstnúmerinu eða 101. Enda sjáum við það að mestu uppbyggingin er í 101 Reykjavík. 

Best væri að skipta um nafn og kalla Samfylkinguna 101 Reykjavík eða 101 Klíkan


mbl.is Kemur dömubindum fyrir í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk fyrir sumarið

Óska öllum góðs vetrar og takk fyrir sumarið. Man ekki alveg hvað ég gerði í sumar, en það hlítur að vera stórkostlegt!

 


mbl.is Holtavörðuheiði lokuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju listamenn

Vil óska þeim listamönnum til hamingju með að fá úthlutað listamannalaun.

Í þessu ferkantaða þjóðfélagi sem við lifum í í dag, þá gleymist það oft hvað þjóðfélagið væri tómlegt án listarinnar. Allt sem er í kringum okkur í dag er afsprengi lista t.d. föt, bækur, tónlist og hönnun svo eitthvað sé nefnt.

Þess vegna skiptir það máli að hlúa að listinni því þá mun listin veita okkur birtu og gera þjóðfélag okkar auðugt af list.  


mbl.is 369 fá listamannalaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjólarán

Þetta bull hjá Reykjavíkurborg að vera með "WOW city bike" víðsvegar um borgina. Hver klukkustund kostar litlar kr. 1.200 kr. Það Þýðir að það þarf aðeins kringum 30 til 40 klukkustundir til að greiða þetta hjól upp. Ef hægt er að kalla rán þá er það þetta.


mbl.is Hálftíminn á 600 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hærra gjald við köfun í Silfru - en ekk bara hertar öryggisráðstafanir í Silfru

Fyrir utan hertar öryggisráðstafanir þá tekur þjóðgarðurinn allt of lítið að kafa í Silfru verðið er kr. 1.000 ætti að vera lágmark kr. 10.000. Það á að greiða til þjóðgarðsins sjálfs en ekki fyrirtækisins sem er með köfunina. Með því tryggir þjóðgarðurinn að hann fær örugglega það gjald sem hann setur upp.

Sem dæmi að yfirborðsköfun kostar frá kr. 20.000 til kr. 40.000 síðan bætast við ef þarf að sækja þig. Síðan leggst þessi kr. 1000 ofan á köfunarverðið. Dagsgjald við köfun fer upp í kr. 68.000

Þetta er mjög hlægilegt eigandi staðarins sem er með mesta aðdráttaraflið í köfun fær skitna 1.000 krónur. Hafa menn engan sóma í sér að rukka betur fyrir staðinn. Síðan koma vangaveltur er þetta í rauninni fjöldinn sem fer að kafa, er hann ef til vill ekki helmingi fleiri sem fara að kafa?


mbl.is Nýjar reglur og reynslu krafist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr Schengen :)

Við Íslendingar eigum að yfirgefa Schengensvæðið og stjórna okkar svæði sjálf.

Með þessu er ESB að keyra ferðaþjónustuna niður og við eigum eftir að sjá miklar verðlækkanir á hlutabréfamörkuðum tengda ferðaþjónustu eftir helgi. BNA mun svara með sama móti og ESB.
Minni á það að Bretland er ekki í Schengen þannig gildir þessi tilskipun ESB ekki þar.

Nú er tími að skortselja á ferðaþjónustuna takk fyrir ESB. Ég spái 8% til 10% lækkun á hótelgeiranum og 5% til 9% lækkun á fluggeiranum.

Hér getum við séð Þýska flugfélagið Deutschen Lufthansa við lok í kauphöll í Þýskalandi er komið lækkun niður í €13,88 pr. hlutur við lokun úr €14.11 pr. hlut.
Spurning er fer það niður fyrir €13.00 á mánudag. (taflan er með 4 klst mælingu). 10. október 2016 fór gengi Deutchen Lufthansa niður í €9.10 pr. hlut, þannig að við getum séð snarpa lækkun.

Deutschen Lufthansa 13,88


mbl.is Bandaríkjamenn þurfi vegabréfsáritanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögleiðing á morði

Þessi nefnd sem vann að tillögum um heildarendurskoðun laga um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf, barneignir, fóstureyðingu og ófrjósemisaðgerðir.

Leggja til að hægt verði að eyða fóstri allt að 22. vikna meðgöngu en ekki að 12. viku eins og er núna. Með því að samþykkja þetta, er verið að lögleiða morð. Hefur fóstrið orðið engan verjanda lengur? 

Reyndar vill nefndin líka hætta að tala um fóstureyðingu heldur á núna að tala um "þungunarrof"

Eftirfarandi er fengið úr www.fyrirburar.is

"Tíðni fyrirburafæðinga eftir meðgönguvikum – af öllum fyrirburafæðingum

60-70% fyrirbura eru fædd eftir 34-36 vikna meðgöngu
20% fyrirbura eru fædd eftir 32-33 vikna meðgöngu
15% fyrirbura eru fædd eftir 28-31 vikna meðgöngu
5% fyrirbura eru fædd eftir minna en 28 vikna meðgöngu (2)."

Af þessu má sjá, að með því að lögleiða fóstureyðingu (þungunarrof) að 22. vikna meðgöngu er verið að leyfa morð á einstaklingi sem hefði geta lifað af. Á Íslandi fæðast 6% barna áður en 37 vikna meðgöngu er náð. Er það þetta sem við viljum? Munum við fá á okkur nafnið "barnamorðingjar"? NEI TAKK ég vill ekki vera barnamorðingi.

Á þessum myndum eru fæddir fyrirburar eftir 22. vikna meðgöngu svona líta þeir út:

22 week Preemie-scale1

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fyrirburði 22 vikna

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fyrirburði 22 vikna lifeNews

  


mbl.is Miðað verði við lok 22. viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjóræningjar komnir með umboð til stjórnarmyndunar

Núnar er Birgitta komin með umboðið. Það er hægt að gefa út bók um allt hennar bull sem hún hefur látið út úr sér. Hún mun örugglega tala bara við "Lækjarbrekkuklíkuna" núna er sömu hóparnir búnir að tala saman í fjórar vikur. Alltaf strandar þetta á skatthækkunargleði þessara manna.

Besta í stöðunni er að Forseti Íslands boði til kosninga eftir þrjá mánuði, þetta er það eina sem mun leysa málið. 


mbl.is „Mun byggja á góðum grunni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru kjúklingabændur eitthvað betri í Danmörku?

Þessi einhliða umfjöllun um kjúklingabændur hér á landi, kemur eins og allt sé miklu betra erlendis.

Hér kemur sýnishorn af kjúklingabónda frá Danmörku og hvernig slátrun á sér stað. Síðan kemur spurning hvaðan í raun koma þeir kjúklingar sem fluttir eru hingað til landsins. Við þurfum hér á landi að hafa upprunnavottorð frá hvaða landi varan er í raun frá. Taíland er fjórða stærsta útflutningslands heims í kjúklingum.

Sem dæmi að Euro Shopper var upphaflega stofnað í Sviss en flutti síðan til Hollands 1/1 2000. Fyrirtækið heitir í raun AMS og hægt að sjá þeirra heimasíðu hér:

http://www.ams-sourcing.com/ams/history/ Hagar gerðust aðilar að AMS árið 2005

 

 


mbl.is Hætti að hindra innflutning á eggjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband