Færsluflokkur: Dægurmál

Flott @ forsetanum

Þetta er með því besta sem ég hef heyrt, hann hefur skýra sýn og æðsta valdið er hjá fólkinu. „En ekki þessir spilltu fjórflokkakerfi sem stjórna núna og er að gera það sama og fyrir hrun". Það er reyndar rétt hjá honum að það þurfi að vera ákveðnar línur um þjóðaratkvæði og við eigum að hafa þær oftar.

Það besta fannst mér um þessa „bóluhagfræði" íslendinga að eitthvað eitt er aðal atriðið t.d. fjármálaútrásin og núna er greinilega að innganga í ESB sem á að bjargar okkur. Í staðinn fyrir að hlúa og styrkja að því sem við gerum best.

Hvernig væri að allir þessir pólitísku loddarar sem fá greitt fyrir að hampa ríkisstjórninni með skrifum sínum, fari nú í það að verja þjóðina útá við!

 


mbl.is Stjórnarskráin þarf að vera skýrari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tölurnar í neysluviðmiðinu hljóta að vera eitthvað skakkar!

Þessi tala kr. 86.530 um neysluviðmið, það hlýtur að vanta eitthvað í þá útreikninga.

Sem dæmi hef ég haft síðustu 3 ár bókhald á mitt heimili og meðaltal síðustu 6 mánuði 2010 var neysluviðmið mitt kr. 113.809 án húsaleigu.

Mér hefur samt tekist að spara með t.d. kaupum á bensíni sem lækkaði 21% miðað við 2009, ég keypti 2009 samtals 2133 lítra en 2010 voru kaupin 1658 lítra og ég ætla að spara fyrir þetta ár um 20% eða kaupa samtals um 1320 lítra.

Þannig að þetta neysluviðmið hlýtur að vera eitthvað skakkt!! 


mbl.is Grunnviðmið 86.530 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Níu ára vísað úr strætó, lagabrot?

Þessi framferði strætó er það ekki brot á barnaverndarlögum (2002 nr. 80 10. maí Barnaverndarlög).

Fyrsta grein segir: "Börn eiga rétt á vernd og umönnun. Þau skulu njóta réttinda í samræmi við aldur sinn og þroska"

Og önnur grein segir " Markmið laga þessara er að tryggja að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu fái nauðsynlega aðstoð. Leitast skal við að ná markmiðum laganna með því að styrkja fjölskyldur í uppeldishlutverki sínu og beita úrræðum til verndar einstökum börnum þegar það á við.
Lögin taka til allra barna sem eru á yfirráðasvæði íslenska ríkisins."

Svo þetta er skýlaust brot að vísa 9 ára úr strætó, lögin eru æðri ...


mbl.is Níu ára barni með skólatösku vísað úr strætó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta hin nýja leið??

Er þetta í raun hin nýja leið? Bara selja það hverjum sem er án þess að reyna að halda eigninni í landinu. Það tekur marga áratugi að byggja það upp með miklu elju og krafti, síðan á að láta það til erlendra aðila á spottprís allt í nafni auðkapitallismans. Hvar er þetta stolt að halda eign sinni sem hefur byggt upp okkar útflutning?

Þurfum við ekki að fara að hugsa á annan hátt? Hvernig viljum við sjá þetta þjóðfélag eftir 10 ár? Viljum við vera hjáleiga i höndum erlendra mafíuauðhringa eða vera sjálfstæð þjóð? Eða eigum við eftir að þakka lífeyrissjóðunum að selja þjóðarskútuna úr landi? 

 


mbl.is 52 milljarða tilboð í Icelandic
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er € dauðadæmd?

Sjáum við ekki á þessu að evran er dauðadæmd! Hún virkar vel í hagfræðibókum sem útópía þar sem allt á að vera í réttu jafnvægi án tillit til hvar landið er í raun og veru. En raunveruleikinn er allt annar lönd eru misjöfn og landsframleiðsla og menningin er misjöfn á milli landa.

Það er aðeins hægt að verja sig með því að vera með sinn eigin gjaldmiðil, en ekki þann sem er án tengingu við þjóðfélag og haldið upp af þvílíku handafli að það stenst ekki.

Hvernig væri að þessir sem eru dolfallnir á € komi bara út úr skápnum og horfi á raunveruleikan, hún gengur ekki upp til lengdar. Það er spá mín að innan 5 ára verður annað hvort þýska markið komið aftur eða nokkur lönd verði farin úr evrunni þar á meðal Spánn.


mbl.is Þýska undrið gæti reynst reiðarslag fyrir illa stödd evruríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spillingarflokkarnir brjóta lög!!

Þessir frábæru spillingarflokkar Reykjavikurborgar Klíku flokkurinn og landráðafylkingin brjóta lög með því að hækka aðeins laun 1. varaborgarfulltrúa, því aðrir varaborgarfulltrúar verða að fá líka sömu hækkun. Ekki er hægt að hækka bara við einn aðila því hinir eru líka varaborgarfulltrúar.
mbl.is Laun varaborgarfulltrúa hækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hetjur hafsins

Var að skoða fjölda þeirra sem hafa skoðað íslensk lög á youtube þá sá ég þetta myndband sem er með rétt yfir 4 milljónir áhorfa næst Björk með 2,7 milljónir. Þetta sýnir sjómennsku eins og hún gerist best og þær hættur sem þeir starfa við. Sjón er sögu ríkari.

 

 


Eru há útgjöld til skólamála = gæði?

Í ritinu Education at a Glance 2010, kemur fram að verg útgjöld okkar til menntastofnana námu 7,8% af landsframleiðslu reyndar árið 2007 en vegið meðaltal í öðrum OECD ríkjum var 6,2%.

Maður kann að spyrja þýðir þetta að það er miklu meiri gæði í kennslunni eða kennslan er á miklu hærri stigi hér en annars staðar? Ég vil segja NEI þótt að margir kennarar gera eins og þeir best geta til að kenna nemendum í t.d. grunnskólum þá eru lögin um  grunnskóla afskaplega frábrotin. Þau eru reyndar svo almenn og opin en vantar alla sýn til hvers þau eru. Sem dæmi um þetta er ég með 2. gr. laga um grunnskóla (http://www.althingi.is/lagas/138a/2008091.html):

2. gr. Markmið.
Hlutverk grunnskóla, í samvinnu við heimilin, er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Starfshættir grunnskóla skulu mótast af umburðarlyndi og kærleika, kristinni arfleifð íslenskrar menningar, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi. Þá skal grunnskóli leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við stöðu og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, velferð og menntun hvers og eins.
Grunnskóli skal stuðla að víðsýni hjá nemendum og efla færni þeirra í íslensku máli, skilning þeirra á íslensku samfélagi, sögu þess og sérkennum, högum fólks og á skyldum einstaklingsins við samfélagið, umhverfið og umheiminn. Nemendum skal veitt tækifæri til að nýta sköpunarkraft sinn og að afla sér þekkingar og leikni í stöðugri viðleitni til menntunar og þroska. Skólastarfið skal leggja grundvöll að frumkvæði og sjálfstæðri hugsun nemenda og þjálfa hæfni þeirra til samstarfs við aðra.
Grunnskóli skal stuðla að góðu samstarfi heimilis og skóla með það að markmiði að tryggja farsælt skólastarf, almenna velferð og öryggi nemenda.

 Það er t.d. ekki talað um það að börnin eiga að læra að lesa, skrifa og reikna sem dæmi hafa bresku lögin þau markmið að fyrir 9 ára aldur eiga þau að geta lesið. Það kalla ég víðsýni og stefna að ákveðnu marki. En íslensku eru svo víðsýn að það liggur við að þau detta um sjálf sig. 


mbl.is Útjöld Íslands til skólamála hæst innan OECD
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundarbrot eða ekki

Hvernig getur það staðist að ef einhver gerir styttu af fugli, eins og Ólöf Nordal gerði af Geirfuglinum, sem er mjög nákvæm eftirlíking á honum eins og hann var að hún hafi einkarétt á slíku. Verk þetta er ekki listaverk heldur nákvæm eftirlíkan af dýri sem var til. Það hafa allir rétt á að gera eftirlíkan að dýrum og geta ekki krafist einkarétta. Það er mikil munur á eftirlíkan af dýri og listaverki.

 

Hér sjáum við mynd af Geirfuglinum sem Náttúrufræðistofnun Íslands, báðar stytturnar eru svo lík uppstoppunni að við getum alveg satt að Náttúrufræðistofnunin eigi einkaréttinn.

Uppstoppaður Geirfugl


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myglað vín á nýjum flöskum

Fyrir hverja eru þessar breytingar? Er þetta ekki bara að breyta til að breyta? Er þetta ekki okkar vandi við erum með stjórn sem vill stjórna allt og öllu en getur ekki stjórna sjálfum sér og eina lausnin þetta hlýtur að fara að reddast.

Það eru um 22.000 heimili að fara á uppboð og eina sem gert er, er skiptu um ráðherra. Við þurfum stjórnvöld sem þora að takast á við vandan en ekki stinga hausnum í sandinn og halda að hlaupa í ESB leysir vandan sem það gerir ekki. Ef fyrirtækin og einstaklingarnir geta ekki risið upp getur þjóðfélagið það ekki og ekki hefur þessu lágkúrulega stjórn gert til að aðstoða í þeim efnum.


mbl.is Lyklar skipta um hendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband