Færsluflokkur: Dægurmál

Er Guðmundur með gullfiskaminni?

Það er alveg merkilegt hvað þessir forystumenn fyrir verkalýðinn hafa mikið gullfiskaminni. Þurfum við ekki að uppfæra þessa karla og fá nýja? 

Samfylkingin var í stjórn með Sjálfstæðisflokknum þegar allt hrundi. Það er meira sega ráðherrar í þeirri stjórn sem er í þessari stjórn og hvað gera þeir núna sama og síðast EKKERT eða þora engu!
Icesave er ekki vandamálið heldur þeir sem stjórna landinu, að verja ekki málstað okkar er glæpur.

Sem dæmi það sem hann sagði frá Danske banki „höfnun Icesave hamlar ekki vexti" http://mbl.is/vidskipti/frettir/2011/04/12/hofnun_icesave_hamlar_ekki_vexti/

Ég vil líka vitna í blaðamann frá New York times ég skil ekki þessa kröfugerð http://mbl.is/frettir/innlent/2011/04/15/segist_ekki_skilja_icesave_krofugerd/

Hvað hafa lífeyrissjóðirnir gert? Svipað og stjórnin ekkert! Ef það hentar ekki þeim, nema að kaupa fallin fyrirtæki á tombóluverði frá bönkunum. Og lífeyrissjóðirnir eru undir handakrika verkalýðshreyfingarinnar.

Það sem lífeyrissjóðirnir ættu að gera og væri hagkvæmt er að selja sínar erlendu eignir í t.d. ríkisskuldabréfum og kaupa aflandskrónur og keyra þessar krónur í virkjun annað hvort fyrir Orkuveituna eða Landsvirkjun og tryggja að sú orka yrði nýtt til þeirra fyrirtækja sem gætu byrja strax að byggja sitt fyrirtæki á þessu ári. Með því móti væri lífeyrissjóðir að hreyfa 1 krónu en um leiða að hreyfa tvær til þrjár aðrar krónur.


mbl.is Þúsund rafiðnaðarmenn farnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugsun klikkaða ESB-kassans

Það er ekki laust við að það stekkur á mann bros og hlátur við að lesa þessa grein „EFTA samþykkja tímabundið ríkisaðstoð". Í annan stað heimta þeir að við tökum á okkur skuldir bankanna en í hinn staðinn þá þarf að biðja um sérstakt leyfi fyrir takmarkaðri ríkisaðstoð. Sem í mörgum tilfellum er miklu minni og gert til að koma þessum banka fyrir horn. 

Það er fróðleg samantekt hjá SFF (Samtök fjármálafyrirtækja) sem byggt er gögnum frá IMF og heitir „Stærð björgunaraðgerða ríkisstjórna gagnvart bankakerfinu"

http://www.sff.is/media/auglysingar/Bjorgunarpakkar_bankakerfi_-_troud_riki_agust_2009.pdf

Síðan getum við spurt þurfti alla þessa björgunarpakka? Fyrirtæki sem ekki stendur sig í samkeppni hlýtur að rúlla yfir! Er ekki komið að því að við verðum að splitta upp bankakerfinu í raunverulegan banka og síðan fjárfestinga banka (eins og var áður). Því þessi venjulegi banki hrundi ekki heldur fjárfestingabankinn.


mbl.is Fellst á tímabundna aðstoð til Byrs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talað frá mínu hjarta...

Þetta er eins og talað frá mínu hjarta og frábært að heyra þetta á BBC: http://www.bbc.co.uk/news/world-europe-13047176

Svona á að halda á okkar málstað vil þakka forsetanum fyrir að verja okkar þegar aðrir gerðu það ekki.


mbl.is Bretar fá peningana aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lánshæfi Íslands lækkar...

...ef við samþykkjum Icesave.

Samkvæmt Lánasýslunni þá er ríkisábyrgðin núna 1300 milljarðar en við að segja "JÁ" mun hún því hækka upp í 1970 milljarða. Er það sem við veljum? Þessi alþjóðlegur greiningarfyrirtæki horfa á það og mín spá er að hún mun hækka um 150 - 225 punkta eða 1,5% - 2,25%. Það mun hækka vegna þess að við erum að auka ábyrgð ríkisins um 51% miðað við núverandi stöðu.

Inn í þessum 1300 milljörðum eru t.d. lán Landsvirkjunar og það er alveg óþarfi að bæta Icesave inn í það ríkisábyrgðarsafn.


mbl.is Enn lækkar lánshæfiseinkunn Portúgals
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VISSI EKKERT!! EN VILL SAMT GREIÐA!!

Það er sammerkt við þá sem koma fram núna og vilja segja já við Icesave að þeir bera fyrir sig þrjár gerðir af lygum, sem er: a) lygi  b) hauga lygi og c) tölfræði.

Allar þær tölu um innheimtu eru byggðar á líkum, auk þess er núna mál fyrir Hæstarétti og ef við töpum því, þá verður okkar greiðsla miklu hærri. Og allar þessar tölur um hvað mikð af lánum mun verða hent yfir þjóðina er broslegar.

Hvað með alla þá peninga sem eru í þessu landi og liggja óhreyfðir og ónotaðir annað hvort í einhverjum bankahólfum eða á 0,10% vöxtum í bönkum.
Hvernig væri að þeir væru í notkun og t.d. getur Landsvirkjun gefið út 50.000 og 100.000 kr. bréfum fyrir almenning. Það væri örugglega leikur einn að safna 50 milljörðum á skömmum tíma. Þetta væri þjóðfélagslega mjög hagkvæmt.

 


mbl.is Vissi ekki af auglýsingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB = Þreytt götumella?

Ég fer nú að halda að ESB sé góð útgáfa af þreyttri götumellu. Það mega allir riðlast á henni bara gegn þóknun! Sem dæmi er Líbýa með 85% af allri olíuframleiðslu fer til ESB landa, Gaddafi og forseti Ítalíu t.d. eiga fyrirtæki saman og 25% af olíu á Ítalíu kemur frá Líbýu og ekki bara það heldur á Gaddafi tugi milljarða evra á leynireikningum í sínu nafni, íbúar Líbýu fá ekki þá peninga heldur einræðisherrann!

Síðan getur ESB ekki tekið ákvörðun sem varðar íbúa Líbýu, er þetta ekki einmitt hugsun götumellunnar sem: er ég er þeirra, sem eiga peninganna. Er þetta ekki ESB í réttri mynd?

Það besta er að síðan kemur Hr. Össur og vill styðja við íbúa Líbýu sem er mjög gott en á móti er hann að setja heila þjóð í skuldaklafa sem heitir Icesave.

 


mbl.is Höfum brugðist íbúum Líbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný sönnun - IceSave er ekki vandamálið heldur þeir sem stjórna!

Miðað við þetta þá er Icesave ekki vandamálið, NIB hlýtur að hugsa hver eru samtals lánin til Íslands mikil % af þjóðarframleiðslu.

Hins vegar var ég að taka saman samanburð á annars vegar evru á móti dollar og hins vegar krónan á móti Dollar og fleiri myntum. Mér hefur alltaf fundis best að horfa á lengri tímabil t.d. 10 ár. Á þessum samanburði sést að krónan er ekki vandamálið heldur þeir sem stjórna.

Hér kemur frá Moneymarket Evra/Dollar  10 ára tímabil frá mars 2001 til mars 2011

euroVdollar_10year

Evra/Dollar var í mars 2001 um 0,9  en í mars 2011 var evran í  1,40371  breyting upp á  55,97%

Hér kemur frá seðlabanka Ísl. Frá 17 mars 2001 til 17 mars 2011

  

17.3.2001

17.3.2011

Breyting í %

Bandaríkjadalur

USD

88,39

115,77

30,98%

Sterlingspund

GBP

126,69

185,98

46,80%

Kanadadalur

CAD

56,42

117,78

108,76%

Dönsk króna

DKK

10,582

21,628

104,38%

Norsk króna

NOK

9,656

20,392

111,18%

Sænsk króna

SEK

8,644

17,982

108,03%

Svissneskur franki

CHF

51,37

126,23

145,73%

Japanskt jen

JPY

0,719

1,435

99,64%

SDR

XDR

112,19

182,65

62,80%

Evra

EUR

78,94

161,32

104,36% 

Heimild: Seðlabank Íslands af neti 17.3.2011

Okkar mynt er að standa sig, í samanburði við evru á móti dollar. Það er ekki til og hefur ekki verði til sú mynt sem er alltaf í 0 jafnvægi.


mbl.is Landsvirkjun fær lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tíu bestu wipeout stundirnar

Hér kemur skemmtileg skyrpa af 10 bestu wipeout stundunum.


Til hamingju Europol - frábær árangur!

Það var að koma á BBC (http://www.bbc.co.uk/news/uk-12762333) að Europol hafi náð barnaklámhring þar sem í eru 70.000 meðlimir í 30 löndum og hafa misnotað 230 börn. Barnaklámhringur þessi keyri sig í gengum heimasíður. Þetta er frábær árangur!!!

Hér kemur líka af heimasíðu Europol (http://www.europol.europa.eu/index.asp?page=news&news=pr110316.htm) Ísland var eitt af þeim löndum sem þessi aðgerð náði til.


Snillingarnir í rekstri...

... eða bara snillingar í gjaldþroti. Það liggur við að maður fer að hlægja þegar lesið er saga hins nýja Máls og menningar við laugarveg 18.

Fyrst boluðu þeir í burtu þá sem fyrir voru þar, þeir vildu fá helmingi hærri leigu vildu fá kr. 3600 á pr. fermetra en var áður kr. 1800 (fréttablaðið 24/08´11). Penninn Eymundsson færði sig bara í húsnæði SPRON við skólavörðustíg. Síðan stofnuð þeir nýja bókabúð Máls og menningar (BMM) á sama stað og kröfðu sjálfan sig með svo hárri leigu að þeir risu ekki undir leigunni frá sjálfum sér og fóru í þrot!! Er þetta hin nýja íslenska snilld í rekstri?

Þeir sem reka fyrirtækið vilja oft gleyma því að mesti auðurinn eru þeir sem vinna á staðnum, ég versla t.d. í ákveðnum fyrirtækjum vegna þess að það er gott og vinsamlegt starfsfólk en ekki eitthvað nafn á fyrirtæki.

 


mbl.is Húsaleigan var tvöfalt hærri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband