Hvar er þetta opna og gegnsæa ferli?

Er Ísland ekki land lýðræðis? Nei í raun ekki eins og t.d. með Orkuveituna og söluferlið í hringum þessa Gagnaveitu sem er í raun ekki komin í söluferli. Það var samið við sama fjármálafyrirtæki og var með fjárhagslegri endurskipulagningu á OR síðan les maður á öðrum stað að selja 49% til lífeyrissjóða, best væri samt að selja þeim stærri hlut því með því fengist hærra verð. Við getum séð þessu líkt allt í kringum okkur og okkar mesta tap er svona stjórnun.

Hvernig væri að byrja á réttum enda og setja Gagnveituna í formlegt ferli og út frá því að ráða þá aðila sem þekkja það ferli en ekki einhverjir sem höfðu verið með verk fyrir OR. Best væri að selja það í gegnum Kauphöllina þá hafa allir sama aðgang en ekki einhverjir vinir í næsta herbergi.

Ísland í dag er ekkert lýðræði, þetta er land vina og vandamanna - lengra nær nú ekki þetta lýðræðishjal.


mbl.is Ekki talin þörf á útboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta allt og sumt sem Breivik fær?

Ég bjóst við þyngri dóm en þessum 21 ár. Einstaklingur sem drepur 77 manns og eyðileggur mannvirki fyrir milljarða að hann skuli bara fá 21 ár sem þýðir að fyrir hvert mannslíf fær hann 3,2 mánuði í fangelsi. Dómurinn þarf að fara X ár fyrir manndráp * 77 = fjöldi ára í fangelsi. Þarf ekki að fara að endurskoða þennan lífstíðardóm!

Að dómarar skulu aðeins meta hvert mannslíf á 3,2 mánuði er í raun sorglegt. Þannig er betra fyrir þig að drepa sem flesta því þú færð vægari dóm miðað við pr. einstakling. Þannig er hætta á að Breivik verði góður viti fyrir einstaklinga með lausa skrúfu að fara sömu leið og hann.


mbl.is Breivik sakhæfur og fer í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég gaf engum einkarétt á að selja myndir af mér!!!

Mér til furðu að í Reykjavíkurmaraþoni hefur ákveðið fyrirtæki fengið einkarétt til að taka myndir af viðkomendum hlaupurum með það fyrir augum að græða á þessu. Þ.e.a.s að selja honum myndina af þér og öðrum við að koma í mark. Einkaleyfið var ekki bara með myndir að gera heldur líka birtingu úrslita. En fékk það fyrirtæki leyfi viðkomanda með til að hafa gera slík? Nei ekki veit ég til þess. 

Viðkomandi hlaupari á því rétt á höfundarlaunum fyrir að selja myndir af sér og ég tali nú ekki um það að hafa ekki fengið leyfi til þess. Er græðgi að drepa þá sem standa að þessu maraþoni?


mbl.is Bannað á grundvelli einkaréttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru trúarbrögð á leið til heljar?

Þetta datt mér í hug varðandi þroskahömlu stúlkuna í Pakistan. Hvar er manngildið hjá þessum svokölluðu trúabrögðum? Trúabrögð geta ekki drepið í nafni Guðs hefur einhver fengið bréf frá honum til þess að framkvæma þennan vilja? Er það ekki bara að það eru einhverjir karlskarfar sem vilja stjórna og nota trúna til þess og manngildi sjónamið þeirra er þeirra eigið rassgat „hér stjórna ég". Með því að hafa svona karlskarfa sem eru með mikilmenskubrjálæði í stjórnun en gleyma kjarna trúarinnar sem er manngildið.  Með því því að láta svona apa stjórn í nafni trúar þá er trúin á leiðin niður til heljar. Eru þessir trúarskarfar ekki að leiða hin venjulegan einstakling í ánauð og gera um leið  landið meira fátækara?

Dettur einhverjum í hug að Kristin þroskaheft 11 ára stúlka hafi vanhelgað kóraninn, þá get ég spurt á móti hvaðan fékk hún þessa bók?  Var þetta ekki bara sett á svið til að geta refsað annarri trú?

Allir þeir sem nota trúabrögð fyrir sitt pólitíska egó þurfa að hlusta á orð Krists „þú sér alltaf flísina í augum náunga þíns en ekki bjálkan í þínu eigin auga". Þetta eru orð sem öll trúabrögð þurfa að hugleiða.

Hið fallega lag Near my God


mbl.is Handtóku 11 ára þroskahamlaða stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikið gert úr hækkun DAX

Alltaf gaman að sjá hvað gert er mikið úr hækkun á hlutabréfamarkið í evrópu. Sérstaklega núna þegar Þýska DAX hlutabréfavísitalan fór yfir 7.000 stiga markið. Síðast fór hún það 2 apríl 2012. En ef við skoðum þessa vísitölu annars vegar miðað við í dag og yfir 5 ára tímabil. Þá kemur í ljós að hún er við það að ná hámarki og er að stefna niður á við aftur. Það er ekki hægt að mæla hagkerfi Þýskalands eftir þessari vísitölu þar sem fjármagnið flæðir fram og til baka. 

Í okkar landi höfum við fjármagn sem hægt er að segja sé „hrætt" eða „stressað" þar sem stjórnvöld setja á skatta og virðisaukaskatt eftir hvað þeim finnst, fjármagn í slíku landi getur aldrei gert neitt gagn þökk sé stjórnvöldum.

                         

DAX 1D_euroland
DAX í dag

En með því að skoða hvernig hún hefur verið síðustu 5 ár sjáum við sveiflurnar, þannig má gera ráð fyrir að hún hafi náð ákveðnu hámarki og mun stefna niður á við aftur.

                            

DAX 5Y_euroland
Dax síðustu 5 árin

mbl.is DAX yfir sjö þúsund stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

esb súpuskálin er tóm - HÆTTUM Í INNLIMUNARFERLINU

 Það er greinilegt að fjárfestar eru hættir að trúa því sem þessi innantómu loforð esb  og evrópska seðlabankans segja. Það er ekkert að marka þetta lið! Best er að vera með sinn eigin gjaldmiðill en ekki eitthvert pappírsrusl frá þreyttum kerfisköllum í Brussel. Það er kominn tími til að hætta í þessu innlimunarbulli!

Hér sjáum við stöðuna frá Bloomberg:

Europe

Index Name

Value

Change

% Change

EURO STOXX 50 Price EUR

2,263.36

-70.02

-3.00%

FTSE 100 Index

5,662.30

-50.52

-0.88%

CAC 40 Index

3,232.46

-89.10

-2.68%

Deutsche Borse AG German Stock Index DAX

6,606.09

-148.37

-2.20%

IBEX 35 Index

6,373.40

-346.60

-5.16%

FTSE MIB Index

13,282.55

-646.04

-4.64%

AEX-Index

322.16

-5.55

-1.69%

OMX Stockholm 30 Index

1,058.10

-7.82

-0.73%

Swiss Market Index

6,407.30

+8.03

+0.13%

Hér gæti einhver frá Brussel kerfinu verið að lýsa hvernig þeir stjórnuðu evrunni!

1259706311_blondes_28


mbl.is Hlutabréf falla í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins! Loksins bolir fyrir pípara

Nú geta fleiri glaðst en landsmenn vegna veðurblíðunar, núna er mesta ánægjan hjá pípurum. Loksins búnir að fá nýjan og glæsilegan bol sem hentar einstaklega vel fyrir þeirra vinnu. Biðin er á enda og bara njóta sýn í vinnunni ...

bolur fyrir pípara


mbl.is Lifnar yfir fólki í góðu veðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæstiréttur hafnar kærum vegna kosninga - HVAÐ ANNAÐ!

Hæstiréttur fer eftir lögum!!!!

Í lögum um kosningar til Alþingis segir:

"86. gr. Ef kjósandi skýrir kjörstjórn svo frá að hann sé eigi fær um að kjósa á fyrirskipaðan hátt sakir sjónleysis eða þess að honum sé hönd ónothæf skal sá úr kjörstjórninni er kjosandi nefnir til veita honum aðstoð til þess í kjörklefanum, enda er sá sem aðstoðina veitir bundinn þagnarheiti um að segja ekki frá því sem þeim fer þar á mill. Um aðstoðina skal bóka í kjörbókina, að tilgreindum ástæðum. Aðstoð skal því aðeins veita að kjósandi geti skjálfur skýrt þeim er aðstoðina veitir ótvírætt frá því hvernig hann vill greiða atkvæði sitt. Óheimilt er að bjóða þeim aðsoð er þannig þarfnast hjálpar."

Þessi Guðmundur formaður ÖBÍ skuli finnast þetta kærumál rétt en ekki sú kjaraskerðin sem þessi ríkisstjórn hefur gert gagnvart ÖBÍ og þegnum þessa lands. Sýnir en og aftur að formaðurinn og þeir sem hallir eru á flokkslínur en ekki þeim sem þurfa hjálpar. Við eigum ekki að vera blind á flokkslínum heldur hugsa hvað hámarkar íslenskt þjóðfélag.

Með lögum skal land byggja og lélegri ríkisstjórn fleygt á dyr.

Annars fer þessi ríkisstjórn að verða jafn leiðbeinandi eins og þessa skilti... 

82B


mbl.is Kærum vegna kosninga hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar á ég að leggja til hliðar? Fjárfesta Lífeyrissjóðir rétt?

Að leggja til hliða peningar til að nota síðar er góð og gagnleg ráðstöfun. Besta fjárfestingin er að hugsa í löngum tíma með því móti nær þinn bolti að verða stærri og stærri. Þess vegna skil ég ekki hvernig lífeyrissjóðir geta ávaxtað fé sitt jafn illa og gert er. Er hér eitthvað syndrom um að kenna t.d. töpuðu þeir 80 milljörðum á að veðja gegn okkar eigin mynt. Er það góð ávöxtun? Það er eins og Lífeyissjóðir og FME séu alltaf að hugsa sínar fjárfestingar út frá Afleiðu og vogunarsjóða hugsun.

Dæmi:
Sjóður 5 hjá Íslandsbanka fjárfestir eingöngu í skuldabréfum með ábyrgð Ríkissjóðs og flokkast sem meðallangur sjóður.
Frá 3. janúar 1998 - 3 janúar 2012 þá hefur gengið á þessum sjóð farið frá:
3.881 til 8.611 sem gerir að meðaltali ávöxtun upp á 12,05% á ári.

Vísitala neysluverð til verðtryggingar (Hagstofan) á sama tíma janúar 1998 til og með janúar 2012 farið úr: 181,4 í 384,6 sem gerir meðal hækkun upp á 5,51% á ári.

Á þessari mynd sjáum við muninn milli sjóðs 5 og vísitölu neysluverðs til verðtryggingar á 14 árum. 

Vísitala vs Sjóður 5


Að fjárfesta er best að hugsa sem langtíma hugsun þannig nærðu að hámarka það fjármagnið. 

Ef þú hefur sem dæmi lagt inn kr. 20.000 á mánuði í þessi 14 ár í sjóð 5 þá værir eign kr. 8.679.784 á sama tíma væri eignin með verðtryggingu orðin kr. 5.048.174. Mismunurinn eru þín eign á að hugsa til langs tíma. Þannig skil ég ekki hvernig Lífeyrissjóðir geta tapað svona miklu og þá kemur spurningin er þeim treystandi?


mbl.is Aukin velta á fasteignamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn af reyndustu hagfræðingum AGS hættir...

...og segir að þá skorti leiðtogahæfileika (CNN). Peter Doyle hefur starfað hjá þeim síðustu 20 ár og vandar þeim ekki kveðjurnar. Hann segir:

"The fund for the past two years has been playing catch-up and reactive roles in the last ditch efforts to save it."

og líka:

"The institution's lack of decisive action, Doyle says, has left "the second global reserve currency (the euro) on the brink."

Er ekki þetta eitt af grunnvandamálum okkar í dag við höfum stjórnmálamenn sem eru fastir í pólitískum skáp og ná þá ekki að horfa fram á veginn og spyrja sig. Hvar eru tækifærin og fara eftir þeim.


mbl.is Líf á evrópsku mörkuðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband