Færsluflokkur: Dægurmál

Er þetta allt og sumt sem Breivik fær?

Ég bjóst við þyngri dóm en þessum 21 ár. Einstaklingur sem drepur 77 manns og eyðileggur mannvirki fyrir milljarða að hann skuli bara fá 21 ár sem þýðir að fyrir hvert mannslíf fær hann 3,2 mánuði í fangelsi. Dómurinn þarf að fara X ár fyrir manndráp * 77 = fjöldi ára í fangelsi. Þarf ekki að fara að endurskoða þennan lífstíðardóm!

Að dómarar skulu aðeins meta hvert mannslíf á 3,2 mánuði er í raun sorglegt. Þannig er betra fyrir þig að drepa sem flesta því þú færð vægari dóm miðað við pr. einstakling. Þannig er hætta á að Breivik verði góður viti fyrir einstaklinga með lausa skrúfu að fara sömu leið og hann.


mbl.is Breivik sakhæfur og fer í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég gaf engum einkarétt á að selja myndir af mér!!!

Mér til furðu að í Reykjavíkurmaraþoni hefur ákveðið fyrirtæki fengið einkarétt til að taka myndir af viðkomendum hlaupurum með það fyrir augum að græða á þessu. Þ.e.a.s að selja honum myndina af þér og öðrum við að koma í mark. Einkaleyfið var ekki bara með myndir að gera heldur líka birtingu úrslita. En fékk það fyrirtæki leyfi viðkomanda með til að hafa gera slík? Nei ekki veit ég til þess. 

Viðkomandi hlaupari á því rétt á höfundarlaunum fyrir að selja myndir af sér og ég tali nú ekki um það að hafa ekki fengið leyfi til þess. Er græðgi að drepa þá sem standa að þessu maraþoni?


mbl.is Bannað á grundvelli einkaréttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins! Loksins bolir fyrir pípara

Nú geta fleiri glaðst en landsmenn vegna veðurblíðunar, núna er mesta ánægjan hjá pípurum. Loksins búnir að fá nýjan og glæsilegan bol sem hentar einstaklega vel fyrir þeirra vinnu. Biðin er á enda og bara njóta sýn í vinnunni ...

bolur fyrir pípara


mbl.is Lifnar yfir fólki í góðu veðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæstiréttur hafnar kærum vegna kosninga - HVAÐ ANNAÐ!

Hæstiréttur fer eftir lögum!!!!

Í lögum um kosningar til Alþingis segir:

"86. gr. Ef kjósandi skýrir kjörstjórn svo frá að hann sé eigi fær um að kjósa á fyrirskipaðan hátt sakir sjónleysis eða þess að honum sé hönd ónothæf skal sá úr kjörstjórninni er kjosandi nefnir til veita honum aðstoð til þess í kjörklefanum, enda er sá sem aðstoðina veitir bundinn þagnarheiti um að segja ekki frá því sem þeim fer þar á mill. Um aðstoðina skal bóka í kjörbókina, að tilgreindum ástæðum. Aðstoð skal því aðeins veita að kjósandi geti skjálfur skýrt þeim er aðstoðina veitir ótvírætt frá því hvernig hann vill greiða atkvæði sitt. Óheimilt er að bjóða þeim aðsoð er þannig þarfnast hjálpar."

Þessi Guðmundur formaður ÖBÍ skuli finnast þetta kærumál rétt en ekki sú kjaraskerðin sem þessi ríkisstjórn hefur gert gagnvart ÖBÍ og þegnum þessa lands. Sýnir en og aftur að formaðurinn og þeir sem hallir eru á flokkslínur en ekki þeim sem þurfa hjálpar. Við eigum ekki að vera blind á flokkslínum heldur hugsa hvað hámarkar íslenskt þjóðfélag.

Með lögum skal land byggja og lélegri ríkisstjórn fleygt á dyr.

Annars fer þessi ríkisstjórn að verða jafn leiðbeinandi eins og þessa skilti... 

82B


mbl.is Kærum vegna kosninga hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klikkaða tvíeiki Reykjavíkurborgar - Knoll og Tott

Þetta klikkað tvíeiki sem stjórnar Reykjavíkurborg í dag Jón Gnarr og Dagur B (Knoll og Tott) eru úr öllum takti við raunveruleikan. Það má helst líkja þessu við „haltur leiðir blindan" hvorugir vita hvert þeir eru að fara en samt á að fara eitthvað.

Að setja þetta nýja 10.000 fermetra ferlíki  í gamla Landsímahúsið með stækkun sem verður það mikil að allur gamli miðbærinn er farinn. Er eitthvað það klikkaðast sem ég hef séð - þetta hússkrípi eyðileggur miðbæinn og um leið þau gömlu hús sem þar eru. Ásta R Jóhannesdóttir sagði: „Persónulega vildi ég að Kirkjustrætið væri lokað [fyrir bílaumferð]". En ég er á því að það þurfi að loka „Knoll og Tott" inn á sérdeild til að eyðileggja ekki Reykjavík meira en gert hefur verið.

Knoll og Tott gengið má líkja við þessa grein um frétt þar sem móðir kærði sundlaug fyrir að gera dóttir sína ólétta...


mbl.is Vill loka Kirkjustræti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðuneytum fækkar - Ég bíð nýtt og betra ráð

Er það ekki best fyrir alla í landinu að leggja bara öll ráðuneytin niður, með því móti verður besti sparnaður sem þjóðin hefur nokkuð sinnum fengið. Þá loksins verðum við laus við hrægarmanna úr stjórnlausu fylkingunni.

Annars er stjórnin farin að verða svipuð og ökumaður þessa bíls.

1259706346_blondes_58


mbl.is Ráðuneytum fækkar í september
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldþortamyntin evran er að aðstoða okkur með afnám gjaldeyrishafta

Þetta hlýtur að vera grín! Miðað við hvernig esb hefur haldið á málum með sína eigin mynt og það er orðin spurning hvenær hún fellur saman, þá skulu þeir sem að henni standa aðstoða okkur með afnám gjaldeyrishafta. Miðað við hvernig evran er búin að leika jaðarríki esb þá er ekkert að marka sem þessir merðir segja um okkar mynt, þeir hafa ekki vit á því.
mbl.is Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

evran = gjaldeyrishöft

Þau lönd sem eru með evruna að mynt hafa eitt sameiginlegt að vera stærsta gjaldeyrishaftasvæði í dag. Vegna þess að löndin hrynja innan frá og um leyð verður myntin lítis virði. Til þess að löndin geti verið með evruna verða þau að frysta allar launahækkanir og nánast allt verðlag hjá sér, til þess eins að geta staðist samkeppni frá Þýskalandi sem jú hefur varla hækkað laun í 15 ár. Hjá mörgum löndum með þessa þrotamynt er svo mikil ójöfnuður landa í milli að myntin sjálf er orðin til vandræða.


mbl.is Dugar ekki fyrir vöxtunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Seðlabankinn og ríkisstjórnin aðalvandmálið?

Skemmtileg lesning frá Seðlabankanum „Kröftugri útflutningur en spáð var" og „lækkun verðbólgu þýddi ekki óbreytta stýrivexti". 85% af öllum vandamálum er vandamál stjórnenda. Hér hafa komið 165 skattalagahækkannir + öðrum álögum frá sveitarfélögum. Einhversstaðar hlýtur þessar hækkanir að koma fram! Við þurfum að losa okkur við dragbíta eins og ríkisstjórninga og þessa pólitísku kjörna seðlabankamenn.


mbl.is Lægri verðbólga þýðir ekki óbreytta vexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórn KÁLHAUSA

Það mætti halda að þeir sem stjórn þessu landi eiga meira skyldleika við KÁLHAUSA!

Tökum dæmi um hið nýja stjórnarráðsmál, en eina ferðina er verið að breyta til þess eins að breyta, kostnaðurinn hleypur á hundrum milljóna sem er í raun fleygt út um gluggann. Útkoman ringulreið og afskaplega slæm stjórnsýrsla (eins og Landsdómur benti á) 

Annað dæmi er þessi 1 milljarður á ári næstu 10 ár sem Strætó bs á að fá frá vegagerðinni. Það er betra fyrir íslenska skattgreiðendur að bæta vegasamgöngur. Aðalvandi strætó bs er að álögur þessara kálhausa sem stjórna á bensín og olíu er það mikil að fyrirtækin sem eru í flutningum ráða ekki við þetta verð. Auk þess er þetta Strætó bs með heimsyfirráðatilburði með því að ætla að keyra til Hafnar í Hornarfirði. 

Er ekki betra að allir þessir fjármunir sem fleygt er í pólitískann loddaraskap ættu að fara í uppbyggingu.

 


mbl.is Guðlaugur Þór: Stjórnarráðsmálið illa undirbúið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband