Glerhýsi Samfylkingarinnar

Þetta er mesta hræsnið að flokkur eins og Samfylkingin sem segist vilja hafa allt upp á borði. Skulu finnast það allt í lagi að enginn veit hver eigi húsnæði sem þeir eru í á Hallveigastíg 1. Það besta er að það skuli vera skráð erlendis og Samfó finnst það bara í fínu lagi.

Fá þessir aðilar sem eiga þetta húsnæði fá þeir einhverja nefndarstörf í staðin? Þessi fylking sem gargar á aðra skulu vera ekkert betri sjálfir. Þetta er dæmi um góðan hræsnaraflokk sem segir eitt og gerir annað. Krafan er allt upp á borðið


mbl.is Leynd yfir eigendum húss Samfylkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkið á að kaupa Grímstaði á Fjöllum

Íslenska ríkið á að kaupa Grímstaði á Fjöllum. það hefur ýmsa kosti t.d. mikil nálægð við Vatnajökulsþjóðgarð eins og sést á myndinni fyrir neðan sem kemur frá Google earth. Einnig er þetta frábær staðsetning til að byggja þar um góðan stað fyrir ferðamennsku.

Með því að ríkið kaupir jörðina er hægt að hafa hana eina af grunnstoðum í ferðamennsku sem tengir bæði Norðurland og Austurland. Þarna er einnig hægt að hafa aðsetur vegna t.d. jarðfræði. Ríkið og við íslendingar þurfum að hugsa út fyrir kassann og horfa til framtíðar og þau miklu tækifæri sem þar bjóðast. Við eigum ekki að láta ekki erlenda fjárglæpahópa taka hana yfir.

Sem dæmi að ef hver íslendingur leggur til kr. 3.125 miðað við að fólksfjöldi hér á landi væri 320.000, þá gengur sú tala upp í 1 milljarð. Með því móti eignum við öll Grímsstaði á Fjöllum. Við ættum að hefja landssöfnun og hvetja alla til að fjárfesta t.d. kr. 5.000

 

Myndin er frá Google earth

Ísland Grímsstaðir á fjöllum


mbl.is Hafa áhuga á Grímsstöðum á Fjöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norska bullið

Norðmenn hljóta að hafa dottið ofan í einhverja hlandskál að detta í hug að taka börn af foreldrum sem eru erlend að uppruna. Þetta minnir óneitanlega á Adólf nokkurn Hitler og hans tilraunir að ríkið myndi ala upp börnin. Við eigum að mótmæla svona bulli við Norska sendiráðið.


mbl.is Norskri barnavernd mótmælt í tugum landa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HS Veitur ekki í lagi

Það er ýmislegt ekki í lagi heldur bílastæðagjöldin á Keflavíkurflugvelli. Það er t.d. HS Veitur sem sjá um dreifingu á t.d. rafmagni hérna á Reykjanesi. Þetta fyrirtæki er fyrirmunað að senda út reikninga á réttum tíma.

Sem dæmi að síðustu tveir reikningar hefur hafa ekki verið í réttum farvegi. Síðasti reikningur kom 5. febrúar inn á banka en gjalddaginn er skráður 31. janúar 2016. Gjalddaginn er sem sagt liðin þegar ég fæ reikninginn.

Gjalddagi þýðir síðasti dagur við greiðslu reiknings en eindagi þýðir lokadagur áður en dráttarvextir koma á reikning. Fyrirtæki sem ekki þekkir þennan mun hlýtur að þura að fara í skóla og læra hlutinn. Að senda út reikning þar sem gjalddagi er liðinn er í raun stórfurðulegt. HS Veitur þurfa því að færa þennan gjalddaga þannig að hann standist útsendingu í banka.

Á tímum þar sem tölvur ráð ríkjum þá hlýtur fyrirtæki eins og HS Veitur að geta haldið þessu í réttum farvegi.

 


mbl.is Bílastæðagjöld tvöfaldast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylgishrun Samfylkingarinnar - hverjum er það að kenna?

Þessi flokkur ef flokkur skyldi kalla holaði t.d. heilbrigðiskerfið að innan í tíð síðustu ríkisstjórn og þeirra eina baráttumál var ganga í ESB, taka upp Evruna og verja erlenda fjárglæpamenn. 

Helsta vandamálið í Samfylkingunni er fólkið sjálft sem er í framvarðasveit þess og er jafnframt á Alþingi. Flokkurinn þarf að losa sig við þessa ryðguðu nagla sem er flokknum til minnkunar. Stórhluti af því liði kemur úr gamla Alþýðubandalaginu og sá flokkur varð aldrei meira en 7% flokkur. þannig að Samfylkingin er bara í góðum málum miðaða við fylgi Alþýðubandalagið forðum. Síðan hefur þessu þreytta og ryðgaða framvarðasveit tekist í gegnum tíðina að losa sig við kratanna í flokknum. Logar gömlu kratanna eru löngu dauðir í þessum flokki eða fylkingu og þessar hugsjónir og eldmóður sem gömlu kratarnir voru með eru því löngu dauðir í flokknum.

Síðan kemur mjög hlægilegt varaformaðurinn Katrín Júlíusdóttir væri mjög til í það að bjóða sig til formanns, til þess að hressa upp á flokkinn. Ef varaformaðurinn getur ekki barist með þessum flokk núna þegar illa gengur, hvernig getur hún það þegar viðkomandi er orðin formaður.

Eins er hægt að skoða borgarstjórn Reykjavíkur sem er Samfylking, píratar og fleiri í uppgerðar félagshyggjuflokkar. Það er hægt að spara 9 milljónir í Húsdýragarð og taka mat af gömlu fólki en það er allt í lagi að eyða 170 milljónum í þrengingu á einhverri götu. Þetta er einhver versta stjórn sem komið hefur í Reykjavík.

Niðurstaða. Flokkurinn þarf að losa sig við þessa ryðguðu og þreyttu nagla úr forystusveit þess sem virðist vera límdir við stólanna. Það dugar því ekki að skipta bara út formanni ef liðið sem er í kringum hann er jafn myglað sem áður. Eins þurfa kjósendur að skipt út þessu liði á þingi og fá ný andlit með hugsjónir krata að leiðarljósi sem mun verja íslenskt samfélag en ekki einhverja vinavæðingu.


mbl.is Landsfundur ræddur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEI TAKK ekkert erlent sýklakjöt

Við eigum að halda innflutningsbanni á fersku kjöti og ekki leyfa erlend hormónasprengt sýklakjöt til landsins. Sem dæmi að erlendir aðilar setja Carbon Monoxide Gas í kjötið til þess eins að það helst lengur rautt. Neytendur vita ekkert hvaða 5. flokks kjöt þeir væru að fá ef þetta er leyft.

Þetta fyrirtæki Ferskar kjötvörur eru í eigu Haga og ef skoðað eru kjötborðin hjá fyrirtækjum Haga, þá er stórhluti af borðinu frá þessu fyrirtæki. Er þetta samkeppnin í dag? Er þeirra eina markmið bara ekki að kaupa nógu ódýrt til að selja það dýr? Auk þess þurfum við íslendingar að stórauka eftirlitið með gæðum á kjöti.

Myndbandið fyrir neðan sýnir framleiðslu á „Pink Slime" sjón er sögu ríkari. 

 

Hér kemur síðan hvað er hægt að gera með viðbætum í kjötið og spurning er hver fylgist með að þetta sé ekki gert? 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Nautakjöt upphafið að endalokunum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnalánið - léleg ráðstöfun

Þetta fræga svokallað „barnalán" sem tekið var í tveimur áföngum í Bretlandi £15 milljónir árið 1981 og £15 milljónir árið 1983 samtals að upphæð £30 milljónir og var kúlulán. Það var óverðtryggt sem bar 14,5% vexti og var óuppsegjanlegt þ.e. ekki hægt að greiða lánið upp fyrir gjalddaga sem er 31. janúar 2016. Fjármálaráðherra var þá Ragnar Arnalds. Með kúluláni eru aðeins greiddir vextir á hverju ári og lánið sjálft er síðan greitt í lokinn.

Ef við skoðum lánið sjálft það hefur mjög háa vexti eða 14,5% sem dæmi að Lehman brothers voru með frá 1925 til 1969 að meðaltali 8,75% í vexti.

Lánið var til 35 ára og hvort lán fyrir sig voru greiðslur að upphæð £2.175.000 eða samtals £4.350.000 í heild hefur því íslenskir skattgreiðendur greitt samtals £147.900.000 í vaxtagjöld af þessum £30.000.000 „barna"láni. Árið 1989 var íslenska ríkið búið að greiða £30.450.000 í vexti eða meira en lánið sem tekið var upphaflega.

Ef við miðum við gengi £ í dag sem er 182 þá eru vaxtagjöldin í heild af £147.900.000 samtals 26,9 milljarðar ísl. króna  og  lán £30.000.000 er samtals 5,4 milljarða ísl. króna. Þetta gerir samtals 32,4 milljarðar ísl. króna. Þessi heildartala er rétt undir tölum sem Landspítalinn fær!

Niðurstaða. Helsta vandamál þjóðarinnar er ekki myntin eða verðtryggingin heldur þingmenn og Alþingi. Þeir virðast gera allt í pólitískum tilgangi án þess að hugsa hver í raun er besta leiðin sem er hægt að fara og fara þá leið. Þessi leið sem félagarnir Svavar Gestsson, Ragnar Arnalds og Gunnar Thoroddsen og aðrir sem sátu í þeirri stjórn voru því mjög dýrir fyrir þjóðina. Vonandi kemur slík stjórn ekki aftur.

 


mbl.is Barnalánið loks greitt eftir 35 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Neytendur eiga þessar bætur

21. janúar féll dómur í svokölluðu útboðsgjaldi og var ríkinu dæmt að greiða hálfan milljarð til þriggja fyrirtæki.

Í raun eiga þessar bætur að fara til þeirra sem keyptu viðkomandi vöru, þar sem fyrirtækin settu þetta gjald út í verðlagið og fyrirtækin eru því löngu búinn að fá þetta gjald til baka. 


mbl.is Kostar ríkið að minnsta kosti 1,2 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óska öllum...

...Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með von um að næsta ár verði öllum betra en árið sem er senn á enda.

Jólasveinar á göngu


mbl.is „Jólin eru tilbúin og ekkert stress“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dvalartíminn og barnasáttmálinn

Þar sem við erum í Schengen, þá eru lög Schengen rétthærri en stjórnarskrá og lög í viðkomandi landi. Samanber að hafa ber barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna til hliðsjónar við hælisumsóknir. Þetta gildir ekki ef við erum í Schengen og hefur engan tilgang að koma með þetta, því við verðum að fara eftir Schengen. Sem dæmi að lög ESB eru rétthærri en stjórnarskrár og lög viðkomandi ESB ríkja, sama á við um Schengen. 

Þegar þessi nýja stofnun verður til þá gæti hún haft mjög víðtækar heimildir t.d. að senda ákveðin fjöldi flóttamanna til viðkomandi ríkja án þess að þau hefði nokkuð um það að segja. Við gætum allt í einu verið á þeim stað að taka við 3000 flóttamönnum frá Ítalíu. Er það sem við viljum með veru okkar í Schengen? 

Schengen eru fyrir ríki innan ESB en bæði Bretland og Írland eru ekki í Schengen. Við íslendingar eigum að segja okkur úr Schengen þar sem við erum ekki meðlimir ESB. Auk þess greiðum við til Interpol og þar fáum við allar upplýsingar sem landamæravarslan þarf á að halda. Það er bæði tímaskekkja og peningaeyðsla að vera í Schengen og ég tala nú ekki um að við eru ekki stödd á meginlandi Evrópu.

ÚR SCHENGEN

 


mbl.is Dvalartíminn styrki réttarstöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband