1.3.2012 | 11:05
Hvar er þetta opna ferli?
Núna hefur Eignabjarg sem Arion banki á selt yfir 13% í Högum. Það sem kemur skemmtilega fram að það var gert í lokuðu útboði. Núna hefur meirihluti eigna í Högum verið selt í lokuðu reykfylltu myrkraherbergi. Hvernig getur það verið að fyrirtæki sem er núna komið í Kauphöllina skuli vera með þannig gerð af sölu. Er ekki þessi ...höll til þess að selja bréf þar?
Mér finnst það skammarlegt að banki sem telur sig starfa fyrir opnum tjöldum skuli í raun vera með svona lokuð útboð. - Ísland hefur ekkert breyst, aðeins hærri og fleiri skattar og vinavæðingin heldur velli.
13,33% í Högum seld á 2,8 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2012 | 20:10
Refsing sem leiddi til dauða
Í gær fékk hin 9 ára Savannah Hardin fékk refsingu sem leiddi til dauða hennar. Að sögn þeirra sem næst voru að hún hafa ekki satt rétt frá við ömmu sína og stjúmömmu að hún hafi verið að borða súkkulaði. Þegar þær komust að því þá létu þær hana hlaupa í 3 klst fyrir utan heimilið án drykkjar eða þangað til hún hné niður og lést sína skömmu síðar á sjúkrahús út af þessum hlaupum. Amman og stjúpan hafa nú verið handteknar. Lesa um á MSNBC today:
Ég er að velta fyrir gildi mannlegra samskipta ef einstaklingar geta ekki átt samskipti nema með svona ofsafengnum hætti ætti þá ekki að banna þeim að vera með börn?
2.2.2012 | 18:07
Viðtal Eiríks Inga í Kastljósi
Ég hlustaði á viðtal Eiríks Inga í Kastljósi. Ég gerði mér ekki grein fyrir þegar því lauk að hann náði að halda mér föngum í 80 mínútur. Þetta er eitt besta viðtal sem ég hef séð.
Það er aðdáunarvert sá lífsvilji og að hlúa að hópnum var frábært. Maður getur ekki gert sér grein fyrir aðstæðum sem þessum og hvað lífsviljinn er sterkur. Það sem Eiríki Inga tókst líka að ég var með honum myndrænt, þannig að ég upplifði þær aðstæður og þann vilja sem þarf, til að komast út úr þessum miklu hörmungum og gefast ekki upp.
Ég vil þakka Eiríki Inga fyrir að sýna mér þær aðstæður og votta um leið aðstendum hinna látunu samúð mína.
Aðdáunarverður lífsvilji | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.12.2011 | 12:12
Gistináttaskattur, mesta grínið eða mesta heimskan!
Þegar lesið er hvað þessi skattur er í dag, þá hljóta þeir sem setja svona skatta á að vera tröllheimskir". Núna eru undanskildir allir þeir sem eru í Íslenskri nátturu eins og gistingar hjá ferðafélögum og allir sumarbústaðir (þeir eru leigðir út í skamman tíma). En þeir sem búa á hótelum, gistiheimilum og eða leigja gistinu í heimahúsum að borga gjaldið þótt að þeir fari ekkert út fyrir borgar og bæjarmörkin. Á t.d. bing.com þá er Reykjavík í 6 sæti yfir skemmtanalíf með titlinum Where It's Always New Year's Eve" Hversu margir vilja heimsækja Reykjavík bara fyrir skemmtanalífið?
Eins þurfa þau samtök að borga gjaldið þótt þeir fái ekki greiðslur á móti eins og Kvennaathvarfið, Vernd og Hjálpræðisherinn sem dæmi. Í þessum tilfellum eru einstaklingar í skammantíma og eru þar af leiðandi með gistinu sem embættismenn eiga að krefja um gjaldið. Hversu klikkað getur þetta verið?
Þessi skattaglaða tröllheimsa" ríkisstjórn sem virðist ekkert geta gert án þess að detta í drullupyttinn. Besta leiðin til að forða þjóðinni frá þjóðargjaldþroti er að lostna við þessa ómennsku stjórn.
Keppinautar undanskildir skatti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2011 | 22:28
Nýja Photoshop gellan
Verður Lindsay Lohan nýja Photoshop gellan? Miðað við hennar lifnaðarhætti er það spurning um hvort Photoshop gerir fyrir þessa útdó... gellu að algjör dundir!
Það er reyndar alveg merkilegt hvað Photoshop getur gert fyrir mann! Sem dæmi þetta
eða þessi frábæra megrun (fyrir og eftir)!
Þurfum við í dag nokkuð af skurlæknum af að halda bara góðann eða góða sem kann á Photoshop?
Hér kemur smá kennsla á youtube
Hér kemur um hvað Photoshop getur gert
Hér kemur Extreme Makeover
og hér kemur af frægu fólki með smábreytingum fyrir myndgæðum!
Það þarf ekki alltaf að trúa sem þú sérð á pappír. Í dag er ekki lengur spurning um ljósmyndarann heldur sá sem sér um myndvinnsluna.
og að lokum þetta, frægar og gerða með +++ þyngdarvandamál sjón er sögu ríkari
Ekkert eðlilegra en að sýna nekt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt 12.12.2011 kl. 01:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.12.2011 | 14:50
Mamman og pabbinn sem eiga 19 börn
Sú kona sem er búin að eiga 19 börn og ganga með barn nr. 20 hlýtur að vera útgáfu af einhverju kraftaverki. Í raun ætti hún að orðu fyrir slíkt. Reyndar kom það í ljós á 19 viku meðgöngu að enginn hjartsláttur var þannig að barn nr. 20 lést. Hér fyrir neðan er linkur á fréttina:
http://today.msnbc.msn.com/id/45603597/ns/today-today_health/t/michelle-duggar-mom-miscarries/
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2011 | 23:49
Skattlaus áróður eða múturfé?
Allir þeir sem fá styrki hér á landi eins og frá Verkalýðsfélögum þurfa að greiða af þeim skatt til ríkisins. Þennan skatt er settur á skattaskýrsluna og það er síðan greitt við uppgjör sem kemur í ágúst hvert ár.
Þess vegna finnst mér það með algjörlega ósæmandi að ekki sé greiddur skattur af þessu áróðurs- og mútfé frá esb sem heitir IPA-styrkir. Það á ekki að mismuna aðilum jafnt skal yfir alla að ganga.
Annars er þetta að vera svipað og í lögin í sögunni Animal Farm Öll dýr eru jöfn" síðan breytti svínin þeim síðar og úr varð Öll dýr eru jöfn, en sum eru jafnari en önnur"
Krafan er ef IPA-styrkir eru undanþegnir skatti eiga líka styrkir frá Verkalýðsfélögum að vera undanþegin skatti.
Frumvarp um IPA-skattleysi lagt fram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.11.2011 | 00:59
Enn eitt mergunarbullið!
Neðst í greininni kemur reyndar fram að í dáleiðslunni hafi hann látið hana vera eins og hún væri södd. Þetta ráð er mjög algengt en líkaminn lætur ekki plata sig því með því að hætta að borða og drekka bara vatn hættir líkaminn að brenna og allt brennslukerfi líkamans fer úr skorðum.
Skemmtilegasta ráðið við megrun sem ég hef séð er að hætta að borða brauð, sykur og sælgæti og fara að ganga reglulega. Þú þarft enga dáleiðslu við það.
Léttist um 40 kíló með dáleiðslu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2011 | 10:33
Nýtt nafn á ESB!
Í ljós hefur komið að vegna misskilnings þá heitir esb ekki því nafni í dag heldur EDZ sem þýðir European Death Zone. Þar sem flest öll þau ríki sem hafa evruna eru komin á fótum fram með þann gjaldmiðil.
Helsti talsmaður EDZ á Íslandi er samfylkingin sem er greinilega mjög spennt fyrir að fara þá leið. Það besta er að sami flokkur var með ráðuneyti bankamála á sinni könnu þegar Ísland hrundi og er ennþá með það ráðuneyti og engin ný lög hafa séð dagssins ljós um bankamál á Íslandi.
Enn lækkun á evrópskum mörkuðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.11.2011 | 10:26
Leiguliðar í eigin landi!
Það eina sem við höfum upp úr því að ganga inn í þennan bræðsluofn esb er að við verðum leiguliðar í eigin landi". Við missum líka alla samninga sem við höfum gert við önnur ríki og besta er að við fáum aðeins 0,68% atkvæðisrétt á okkar eigin landi.
Það er hægt að líkja þessu við að ganga í Kiwanisklúbb þar sem klúbburinn fær árslaunin þín og skammtar þér síðan til baka fæðulífeyrir til að þú geti lifað.
Okkar besta tækifæri felast í því að vera sjálfstæð og hafa full sjálfstæði yfir okkar málum, án þess að einhverjir aðrir kúkalabbar hafi eitthvað um það að segja. Við eigum mikið inni í að auka útflutning til landa utan esb, því heimurinn er jú 7 milljarðar.
Öðrum leyft að fjárfesta hér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |