Enn eitt mergunarbullið!

Fyrst þegar ég last þessa grein hélt ég að ég væri að lesa næsta grínþátt á RÚV. Hún fór í dáleiðslu og léttist um 40 kíló. Trúlegt að dáleiðslan sjálf lætur þig léttast! Reyndar kemur þar líka fram að „hún hafi rýrnað um helming" sem þýðir að ef hún hafi léttst um 40 kíló þá hafi hún verið 80 kg fyrir. Miðað við skoðun á myndinni er hún örugglega þyngri en það! Mitt besta ráð til hennar Sam er að ég tók úr vösunum alla mynt og lykla og ég léttis um 5 kíló.

Neðst í greininni kemur reyndar fram að í dáleiðslunni hafi hann látið hana vera eins og hún væri södd. Þetta ráð er mjög algengt en líkaminn lætur ekki plata sig því með því að hætta að borða og drekka bara vatn hættir líkaminn að brenna og allt brennslukerfi líkamans fer úr skorðum.

Skemmtilegasta ráðið við megrun sem ég hef séð er að hætta að borða brauð, sykur og sælgæti og fara að ganga reglulega. Þú þarft enga dáleiðslu við það.
mbl.is Léttist um 40 kíló með dáleiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband