Færsluflokkur: Dægurmál

Óska eftir að kaupa stóra klemmu...

Til að geta skellt framan á túllan á þessum manni sem er fjármálaráðherra. Hann virðist vera þeim gáfum gæddur að um leið og hann opnar túllan á sér, þá tala hann alltaf mjög neikvætt og reynir eftir fremsta megni að geta bakkað. Á þessu stigi þegar verið er að semja við aðra skiptir máli að hafa það hugfast að fæst orð bera minnstu ábyrgð. Það skiptir máli að framkoma við samninga sem fagmannleg en þessi flumbrugangur ráðherrans er ekki okkur í vil.
mbl.is Hóflega bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundurinn fann eigandann

Yfirleitt lesum við um það að eigendur eru að leita að hundinum sínum. En í þessari grein er hundurinn farinn að leita að eigandanum. Spurning er uppi hvort Steingrímur Joð og hundurinn hafi verið að leita saman annar að eigandanum og hinn að blaðamönnun bara til að geta talað um eitthvað. Eða gæti verið að þetta er hundurinn Steini Joð?
mbl.is Eigandi hundsins fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farið varlega á Bolludaginn

Ég vil nú bara segja við alla karlmenn að fara varlega á Bolludaginn. Saman ber mig ég í mínu mikla sakleysi sá eina konu sem ég þekkti og sló á rassinn á henni og sagði BOLLA! BOLLa. Það skipti engum togum að ég mætti þakka mínu sæla að enda ekki með glóðarauga á báðum augum. Blessunin misskildi eitthvað orðið BOLLA hjá mér, hún hélt víst að ég væri að segja að hún væri bolla þar eð að sega út frá þyngd. En það var aldrei mín áætlun ég var bara að sníkja bollu.

Tær snilld

Þetta kalla ég tæra snilld í óvissu „á ég eða á ég ekki", þetta yrði frábært efni fyrir raunveruleika þátt. Okkur yrði haldið í gíslingu óvissu í marga... marga þætti. Síðan fer ég að velta fyrir mér öllum þeim ómælda tíma sem fór til einskis... ætli þetta komist í heimsmetabók?
mbl.is Sækir um skilnað í 15. sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjaldborg um heimilin - Ný útgáfa

Hér er komin fyrirtaks útgáfa um skjaldborg um heimilin í landinu - það þarf að senda þessa útgáfu á ríkisstjórnina. Hún er reyndar fundin upp af Rússneskum bónda sem var að verja kartöflugarðinn sinn og setti bara jarðsprengur í kringum hann. Hvernig væri að ríkisstjórnin kæmi bara fyrir jarðsprengjum í kringum heimilin í landinu til að verja þau?
mbl.is Varði kartöflugarðinn með jarðsprengjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju Ísland

Nú geta okurfyrirtækin fara að vara sig!! Græðgi þeirra að lána til að græða sem mest er núna að falla á þau sjálf.
mbl.is Dómnum verður áfrýjað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna að byggja við Landspítalan?

Ég velti því fyrir mér hvers vegna að byggja við Landspítalann á sama tíma og gríðarlegur niðurskurður er á þeirri stofnun. Á sama tíma er verið að loka ennþá meira á Reykjarnesi og sú heilsugæsla er næst flugstöðinni, ef eitthvað kæmi þar uppá þá gæti heilsugæslan ekki sinnt því starfi. Á þetta bara að vera tómir veggir með ekkert starf í? Og heyra ráðamenn segja „sjáið þessa bygging byggðum við" þótt ekkert færi þar fram! Jú nefnilega þeir fagmenn sem ég hef talað við segja að 65% af þessari viðbyggingu séu skrifstofur! Ef það sé rétt þá var innréttað nýtt hús rétt hjá Landspítalanum og getur það ekki bara gengið áfram sem skrifstofur?

Síðan les ég grein eftir Hilmar Þór á visir.is að þessi nýja viðbygging er ekki ætluð að hanna af íslenskum arkitektum heldur stórum erlendum arkitektastofum sem hafa þar til gerðan mannafla. Þetta er sennilega enn ein skrautfjörðurinn í ríkisstjórn erlendu lánadrottnana.

Við hljótum að fara að hugsa eigum við bara að byggja til að byggja.


Lærdómur

Ef við drögum sama hvað við getum lært af útrásarvíkingum, þá mun ekkert standa á því blaði. Allir höfðu eitt sameiginlegt þeir áttu ekkert en tóku allt að láni og komið var við þá eins og kónga og hvílík snilld þeir höfðu. Ég tel það ekki snilld að taka lán og kaupa fyrirtæki það er jú alltaf spurning hvernig þú rekur fyrirtækið. Og besta trikkið er síðan að láta fyrirtækið sem þeir keyptu borga lánið!

Leitið og þér mun finna

Það er loksins að við sjáum einhverja hreyfingu og skoðun erlendis. En þetta er búið að vera í undirbúning síðan í september 2009 að gera þessa skoðun í Lúxemborg, hvað tekur þá allt hitt langan tíma? Áttum við ekki að skoða þetta fyrst til þess að gögn tínist ekki?

En svo fer ég að hugsa þarna fóru út 5 einstaklingar til Lúxemborg, en það eru um 200 manns í kringum ósk um inngöngu í þrælabandalagið. Erum við nokkuð að forgangsraða hvað er mikilvægt? Það kannski skiptir þessa ríkisstjórn ekki máli hvort 20 eða 40 milljarðar týnast vegna hversu seint þetta tekur.


mbl.is Leitað í Lúxemborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er hægt að ganga langt í kæruleysinu

Ef ég fengi heilann af Ömmu sendan til mín eftir jarðarför þá myndi þið þurfa að leggja mig inn á Klepp með mikið af Rison. Hvað er hægt að ganga langt í kæruleysinu, það er eins og það er ekki borinn mikil virðing fyrir hinum látna.


mbl.is Fengu heila ömmu sinnar í poka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband