18.2.2014 | 16:47
Eru Hagar eitthvað betri sjálfir??
Í herferð Haga sem eru eigendur að Hagkaup og Bónus til að flytja inn óhindrað einhverja osta.
Þá vil ég spyrja eru þeir eitthvað betri sjálfir (Hagar) sem dæmi á Hagar, Ferskar kjötvörur ehf og ef við skoðum kjötborðið í mörgum Hagakaups- og Bónusbúðum þá kemur í ljós að þeirra eigið fyrirtækið (Ferskar kjötvörur ehf) er með yfir 80-90% af kjötborðinu. Er þetta ekki einokunartilburðir? sem í leiðinni hækkar vöruverðið. Hvernig getur fyrirtæki vilja hafa eitthvað óhindrað fyrir sig en er síðan sjálft með einokunaraðstöðu á vörutegundum sem það sjálft selur í sínum búðum? Þarf ekki að fara að skoða verslunarhætti Haga?
![]() |
Una ekki niðurstöðu ráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nákvæmlega
Sigurður Baldursson, 18.2.2014 kl. 16:59
Eg kaupi aldrei Bónuskjúkling- Bónus ræktar ekki kjúklinga !!!!
Erla Magna Alexandersdóttir, 18.2.2014 kl. 18:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.