Færsluflokkur: Dægurmál

Ber lögreglunni að vera mannlegir skildir?

Svarið er NEI. Þeim ber ekki að vera einhverjir mannlegir skildir ef þeir eiga að vera það, þá þarf þetta lið sem stjórnar landinu að greiða í samræmi við það. En samkvæmt lögum eiga þeir að veita t.d. yfirvöldum vernd (sjá 1. gr. Hlutverk lögreglu) en bera ekki að vera mannlegir skildir.

Þess vegna þurfa stjórnvöld að sjá til þess að þeir hafi mannsæmandi laun og spari ekki það mikið í lögreglunni að hún geti ekki séð um starf sitt. Ef sparnaður verður það mikil hjá lögreglunni þá er hætt við að réttarríkið virkar ekki lengur.

lög um lögreglunna: http://www.althingi.is/lagasofn/nuna/1996090.html


mbl.is Skjöldur milli þings og þjóðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður enginn eftir í vinnu?

Miðað við hvað heyrst hefur um næsta Fjárlagafrumvarp. Þá er alveg ótrúlegt að það skuli yfirleitt einhverjir vera að vinna hér á landi. Á sama tíma er þessi Ríkisstjórn ekki að spara á sínum gæluverkefnum. Þar er pólítískur vilji til að eyða um efni fram tvö dæmi: innlimunin í esb og stjórnlagaráðið. Í stjórnlagaráði er kostnaðurinn áætlaður í Fjárlögum 236 milljónir. Eigum við ekki að byrja á að klippa á allar pólítískaeyðslu og bitlingastarfssemi og vera með heilbrigða vitund í þjóðfélaginu.

Mesti sparnaðurinn fest í orðum Nigel Fagae spurning hversu marga milljarða?


mbl.is Lykilstarfsmenn á brott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta sem koma skal?

Er þetta byrjunin á því sem koma skal? Þegar einstaklingar hafa misst allt þá er það eina sem eftir er, er að rísa upp. Í mynd Michael Moore; „Capitalism: A love Story" kemur hann einmitt inn á þetta og sýnir hlutskipti þeirra sem misst hafa allt. Er ekki þetta að gerast hægt og bítandi í Evrópu? Það á að bjarga bönkunum, esb eða Seðlabanka Evrópu en gleyma að í hverju landi býr fólk. Einstaklingar sem hafa tilfinningar og þegar gengið er á hlut þess, allt í nafni elítu og samsull banka sem gera allt til að stækka. Þá er þetta eina svarið er að rísa upp.  

Í öllum þessum fréttum um að reyna að bjarga Grikklandi frá gjaldþroti þá er engin frétt um hin venjulega Grikkja og hvaða aðstæður hans eru eða hans lífskjör? Keisaraveldið esb er ekki að velta því fyrir sér það er of lítið. Hvenær kemur sá tímapunktur að við horfum á þessa kerfishugsun eins og esb er með og sjáum að við verðum að breyta um kerfi þannig að þjóðfélagið og einstaklingar innan þess sem heild lifi.


mbl.is Handteknir á Wall Street
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að þessum foreldrum...

...skilja þau ekki þarfir sonarins? Hvar er best að búa fyrir soninn? Jú hjá Hótel Mömmu, hvar annars staðar. Þar er besti maturinn, mesta umhyggjan og auk þess þarf ekki að hugsa um sig, því mamma gerir það fyrir mann! Þótt að hann er jú kominn á fimmtugs aldur þá líður honum bara vel.

Þótt að við karlmenn höfum bara einn X litning en komur hafa tvo X litninga. Þá geti það bara þýtt að við þurfum bara lengri tíma til að átta okkur á hlutunum, en verðum að hafa helmingi hærri laun en konur til að vinna upp þessa tvo X litninga.


mbl.is Sonurinn neitar að flytja að heiman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árangur Norrænu velferðarstjórnarinnar er svartnætti!

Besti árangur þessar svokallaða velferðarstjórnar samfylkingarinnar er að nú í september eru hátt í 250 íbúðir sem fara á uppboð. Þetta er 22% af öllum uppboðum á íbúðum allt síðasta ár. Vill bara óska þessum aumingjum eins og t.d. jóhönnu, árna pálli og össuri sem stjórna til hamingju með þennan frábæra árangur við að koma okkur lengra inn í svartnættið!

Það er greinilegt að þessir aumingjar eru í kassa sem aðeins hafa tvö möguleika það er að fara inn í þenna bræðsluofn esb og fjölga svo um munar aðstoðarmönnum til þess að þetta já-lið fái einhverjar greiðslur.

Einn af frægustu hvatningaleiðbeinendum heims Anthonyu Robbins segir „að til að leysa vandamáið þitt, þarfti að fara út úr þæginda umhverfinu og takast á við vandamálið". Ef við horfum á stjórnun samfylkingarinnar bæði með Sjálfstæðisflokknum og núna þá hefur ekkert breyst hjá þeim alveg nákvæmlega sami takturinn sem fellst í því „best að gera ekki neitt".


mbl.is Hátt í 250 uppboð í september
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherraræði

Er ekki mesta vandamál Íslands að ráðherrar hafa of mikið vald? Þeir halda að þeir séu í Guð og stjórna í skjóli þess og fyrir flokkinn! Maður fer nú að velta fyrir sér lögum um „Ráðherraábyrgð " og velta fyrir sér hvort Landsdómur á eftir að taka mál fleiri ráðherra?


mbl.is Leynimakk með Magma Energy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hve glöð er vor „DRULLUSOKKUR"

Þegar „DRULLUSOKKARNIR" fara nú að standa upp og heimta eitthvað fyrir sinn snúð. Hér á árum áður þá töluðu menn og börðust fyrir sínum málum en núna heimta þeir bara. Það liggur við að maður verður að hafa regnhlíf þegar þeir tala slíkur er „frussugangurinn"!

Með slíkum „frussugangi" kemur hann óorði á þá iðngrein sem hann er að tala fyrir. Hvernig væri að þessir leppalúðar sem þykjast vera þingmenn myndi tala og verja sitt mál? 

Hversu dýrt verður það þjóðinni á endanum að leppa upp á allar þessar kreddur? Er ekki besti sparnaðurinn að losa sig við helsta óvin íslenskra heimila, stjórnina sjálfa?


mbl.is Setur skilyrði fyrir stuðningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það á að kæra svona fyrirtæki!

Einstaklingar borga fyrir að hafa neyðarhnappinn, þessi hnappur er eins og nafnið bentir á hnappur í neyð. Síðan kemur í ljós að vegna bilunar á símkerfi Vodafone þá bara virkar neyðarhnappurinn ekki og alla helgina.

Ef alvarlegt slys bera að höndum og neyðarhnappurinn virkar ekki sem viðkomandi er með, þá er Vodafone skaðabótaskilt ef símkerfi þeirra virkar ekki. Ég bara spyr hvers konar drullufyrirtæki er þetta?


mbl.is Neyðarhnappar óvirkir um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sexy Brúðkaupskjóll!

Ég get vel skilið að Ungfrú Kardashian skuli hamast í ræktinni, ef hún ætlar að njóta sín í slíku djásni. Það er bara ein spurning eða vangavelta sem er að hríslast um minn litla heila, ætli hann verði með sérútgáfu af rassstærð. Þar sem hún er þekkt fyrir að vera með Deluxe útgáfu af slíku.
mbl.is Kim Kardashian er með tvo einkaþjálfara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það fer minna til vegamála en gjöldin af bílnum!

Um daginn var tjáð af snillingum þessara stjórnar að það þarf að hækka meira skattinn á bensínið til að geta staðið undir vegagerðinni.

En samkvæmt fjárlögum 2011 þá eru heildargjöld til vegamála (á bls 86) um 21,9 milljarður kr.

En þegur við skoðum tekjuhliðina (á bls 14) sem við kemur bílnum þá er það uppá 23,1 milljarður
Inn í því er (Vörugjald af bensíni 12,3 milljarðar, Olíugjald 6,8 milljarða. Kolefnisgjald 3,1 milljarða. og þungaskattur 810 milljórnir) ekki er talið með í þessu bifreiðargjöld upp á kr. 6,3 milljarðar.

Þannig að það er hagnaður er meiri en útgjöld til vegamála í kringum 1,2 milljarða og þá er ekki tekið inn í myndina bifreiðargjöldin.   

Vill líka minna á það að Steingrímur J. Sigfússon og Svavar nokkur Gestsson lögði fram nefndarálit og kvörtun þegar birfreiðagjöldin voru sett á að það skildi ekki renna til vegamála.. Nefndarálit Svavars; Nefndarálit Steingríms

Hvernig væri að þessi maður myndi standi við þau orð sem hann var með nefndarálit fyrir? Eða eru orð hans bara raup út í loftið.


mbl.is Olíuverð á uppleið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband