15.7.2012 | 20:32
Þarf ekki að breyta reglum fyrir þá sem reyna að smygla sér úr landi?
Nú er svo komið að maður heyrir stöðugt að það er reynt að smygla sér úr landi. Annaðhvort gegnum skipafélögin eða þá eins og nýjasta gegnum Keflavíkurflugvöll. Þar sem þetta verður æ kostnaðarsama fyrir fyrirtækin og ríkið virðist bara horfa á á meðan. Þetta virðist alltaf vera þeir sem hafa óskað eftir hæli hér á landi. Eru þeir þá bara að nota landið sem stökkpall fyrir annað land? Þar sem þeir fá jú bæði dagpeninga og húsnæði frítt.
Við eigum að taka miklu fastar á þessu máli og þeir sem verða uppvísir að slíkur verða sendur strax úr landi og þá eins og reglan hefur verið til þess land sem þeir komu frá.
|
Maður handtekinn í Sæbjörginni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


bofs
fun
gjarnan
gudbjornj
harpam
hordurhalldorsson
jaj
johanneliasson
jonvalurjensson
ragnar73
seinars
sighar
esbogalmannahagur
krist








Athugasemdir
Ég sá tvo hælisleitendur sniglast um í Sundahöfn nú nýlega. Þeir voru að skoða girðingar og aðstæður. Sjá hér: http://bjartsynisflokkurinn.blog.is/blog/bjartsynisflokkurinn/
Einar Gunnar Birgisson, 15.7.2012 kl. 21:58
Nú er það svo að þessir hælisleitendur virðast vera utan laga og reglna meðan þeir bíða afgreiðslu um landvistarleyfi. Ekki er heimilt að halda þeim föngnum nema um alvarlegt brot sé að ræða. En hvenær telst brot alvarlegt?
Það er ljóst að ef þeim tækist að komast frá landinu með skipi og fyndust á leiðinni, mun skipafélagið þurfa að sæta ströngum kröfum við komu til annars lands auk hárra fjársekta. Þetta á við ef skipstjóri framselur flóttamanninn til tollayfirvalda í viðkomandi landi. Ef flóttamaðurinn fyndist fyrst við komu skipsins til þessa lands, væru kröfur enn strangari og sektir skipafélagsins enn hærri. Jafnvel gæti skipið þá átt von á að verða óheimilt að koma aftur til þessa lands um einhvern tiltekinn tíma. Við getum rétt ímyndað okkur þann skaða sem t.d. Eimskip eða Samskip yrðu fyrir við slíka meðferð.
Það er því ljóst að brot þeirra sem reyna að smigla sér eftir þessum leiðum eru alvarleg, a.m.k. fyrir skipafélagið.
Svo er hitt sjónarmiðið, hvers vegna að halda flóttafólk föstu hér á landi, þegar það ekki kærir sig um dvöl hér? Það á auðvitað að hjálpa því fólki sem fyrst úr landi, eftir samþykktum Schengensáttmálans.
Um þann sem handtekinn var um borð í Sæbjörginni, má gera ráð fyrir að þar hafi bakkus verið að verki. Ef hann ætlaði að komast úr landi með henni er hætt við að hann hefði þurft að bíða lengi!
Þá er orðið ljóst að þeir sem þessa iðju stunda, eru að reyna að komast úr landi eftir ólöglegum leiðum, vita nokkuð hvað þeir eru að gera. Þeir vita hvert skipin eru að fara og reyna eingöngu við þau sem stefna vestur um haf. Oftar en ekki virðast þeir þekkja þá staði sem veikastir eru í vöktun hafnarsvæðanna. Þetta vekur vissulega upp spurningar hvort þeir hafi vitorðsmenn hér á landi, hvort einhver er að nota þetta fólk sem fjárþúfur með því að selja því upplýsingar.
Gunnar Heiðarsson, 15.7.2012 kl. 22:03
Þvílík þvælu umræða! Ég hélt alltaf að það þyrti að drekka brennivín sér til óbóta til að fá deleríum tremens. En það þarf greinilega ekki. Það er alveg nóg að fólk sé orðið vitstola ruglað af lögum og reglum landsins sem það vitnar síðan í til að fá útrás fyrir hefnadarþörf sína og annað óeðli.
.Það er orðin leitun af fólki sem spyr um ástæðunna af hverju fólk leggur það á sig að flyja þetta volaða snarvitlausa land...
Það á að taka fast á fólki með þennan hugsunarhátt. Eiginlega þarf fólk að taka sig saman í andlitinu og berjast við neikvæðni, skítamóral og óréttlæti í hvaða mynd sem er.
Það er með ólíkindum hvað margt fólk nýtur þess að sparka í liggjandi fólk og notar þessu ógeðslegu lög og reglur landsins sem ódýra afsökun fyrir sjúkri hegðun sinni. Svo er sama fólk að býsnast yfir talibönum og illmennum Íslams. Sem eru bara fólk að fylgja sínum reglum sem það hugsar ekkert nánar út í...ela. huglausit pakk eins og allt of margir íslendingar eru líka. Þetta blogg og kommentar er enn eitt dæmið um vesaldómin sem hrjáir þetta land...
Óskar Arnórsson, 15.7.2012 kl. 23:48
Lausnin á þessu vandamáli er fremur einföld: Þeir hælisleitendur , sem eru teknir við þetta fá hælisumsókn sinni umsvifalaust synjað og verða sendir, með það sama, til heimalandsins. Ef þetta fólk hefur einhvern hug á að fá hæli hér á landi er ekki mjög líklegt að það sé um leið að reyna að komast í burtu?????
Jóhann Elíasson, 16.7.2012 kl. 01:29
Jóhann! Íslendingar gætu byrjað á að hætta að pynta hælisleitendur með þessu kerfi sem er bara leikrit og tómt rugl. Útlendingar koma hingað í góðri trú að leta hælis, enn byrja að reyna að komast í burtu af landinu þegar þeir skilja hversu óheiðarlegir og falskir Íslendingar eru raunverulegulega í þessum málum... hvernig væri að kaupa fyrir þá farmiða þegar þeir biðja um það?
Óskar Arnórsson, 16.7.2012 kl. 07:20
Ef þeir/þær sem óska eftir hæli hér á landi og um leið reyna að flýja til annars lands, þá hljótum við að meta það svo að viðkomandi vill komast burtu?
ÁKVÖRÐUN STJÓRNVALDA UM HÆLI Á ÍSLANDI
Á Íslandi er það Útlendingastofnun sem tekur ákvörðun um umsókn umsækjenda um hæli. Neikvæðri ákvörðun Útlendingastofnunar er hægt að áfrýja til æðra stjórnvalds sem er dómsmálaráðuneytið.
Sá tími sem það tekur Útlendingastofnun að afgreiða hælisumsóknina er frá nokkrum dögum og til allt að 1-2 árum. Í einstaka tilfellum getur málsmeðferð jafnvel tekið lengri tíma. Þegar Útlendingastofnun hefur farið yfir og metið umsóknir um hæli á venjulega ein af eftirtöldum niðurstöðum við um hverja einstaka hælisumsókn. Aðeins einn af neðangreindum möguleikum getur átt við um hverja umsókn.
Umsókn um hæli er hafnað enda er það mat Útlendingastofnunar að hælisleitandi geti augljóslega ekki talist vera flóttamaður í skilningi Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna. Hann verður venjulega sendur aftur til heimalands síns.
Umsókn ekki tekin til greina vegna þess að annað ríki ber ábyrgð á hælisumsókninni: Ísland er aðili að svokallaðri Dyflinnar-reglugerð frá árinu 2003 en samkvæmt henni gæti annað ríki í Evrópu borið ábyrgð á hælisumsókn, t.d. vegna þess að viðkomandi hefur sótt um hæli í því landi eða að það ríki hefur gefið út vegabréfsáritun handa hælisleitanda.
Umsókn um hæli verður tekin til efnismeðferðar á Íslandi: Ef frásögn hælisleitanda er þess eðlis að Útlendingastofnun telur rétt að meta hana betur og ef annað ríki ber ekki ábyrgð á hælisumsókninni þá verður hún tekin til svokallaðrar efnismeðferðar á Íslandi. Það þýðir að Útlendingastofnun boðar hælisleitanda í viðbótarviðtal þar sem hann gerir nánari grein fyrir ástæðum flótta og umsókn um hæli.
Niðurstaða Útlendingastofnunar í hælisumsóknum er venjulega á fjóra vegu og getur aðeins einn möguleikinn átt við um hverja umsókn:
Er það flóttamaður sem reynir að strjúka frá því landi sem það óskaði eftir hæli hjá? Það lítur mjög neikvætt út fyrir hann sjálfan síðan kemur spurning eiga Íslenskir skattborgarar að borga Eimskip hf fyrir það gjald sem Bandarísk yfirvöld sekta það um? Erum við tilbúin til þess?
Ómar Gíslason, 16.7.2012 kl. 07:45
... Það er rétt hjá Gunnari að við verðum flóttamenn virðast vera utan reglna og laga en það er eins og við höldum þeim föstum hér á landi.
Ómar Gíslason, 16.7.2012 kl. 07:48
Hælisleitendur sem koma til Íslands fá mest ómanneskjulegustu meðferð á Norðurlöndum með undantekningu á nokkrum stöðum í Svíþjóð. Framkoma Íslendinga gagnvart fólki í svona neyð er með þvílíkum ólíkindum að ég vel að trúa því að fólk skilji ekki ástandið í eigin landi.
Reglurnar sem Skapti setti hérna inn eru alveg hárréttar og líka hluti af vandamálinu. Aðbúnað fólks sem á að búa mánuðum og árum saman án þess að fá að fara í skóla, án vinnu og án pappíra, líta margir á sem eitthvað lúxuslíf og demba úr sér öfundssýkinni sinni af því að þeir fá ekki frítt í strætó líka.
Það þurfi mánuðu að fá í gegn mál þegar bréf voru send með pósi og mesta lagi faxi milli landa. Hraðin hefur ekkert aukist með árunum hjá Útlendingastofnun. Það vinnur allt of mikið af fólki við ekkert. Það býr til verkefni og fyllir út eyðublöð. Það vinnur hörðum höndum aðallega við að gera mikilvægi sitt sem öruggast.
Útlendingastofnun er ein merkilegasta stofnun á Íslandi í dag. Hvernig væri að fá alvörufólk til að vinna þarna sem segir nei eða já og ekki "Njaa" ....
það er ekkert að því að neita fólki um landvistarleyfi á allskonar réttum forsendum. Enn það eiga að vera með lög í landinu sem segja að geta yfirvöld ekki afgreitt málið innan ákveðins tíma, þá hefur útlendingur öðlast fullan rétt að vistast í landinu eftir það með öll réttindi.
Útlendingar eiga sér fáa talsmenn á Íslandi og allt of margir minna gefnir byrja alla umræðum um kvað þeir kosta. Svoleiðis fólk er því miður í vinnu hjá þessari stofnun og gerir útlendingum sem og flóttamönnum lífið leitt í krafti embættis síns...
Gestrisni Íslendinga gagnvart þeim sem koma til landsins peningalausir er eitt það ljótasta sem ég hef séð um alla veröldinna. Hún er hreint hroðaleg, andstyggileg og lýsir okkur miklu frekar enn flóttamanna vandamálinu.
Svo koma gangsterar með fullt af peningum til landsins, og þeim er tekið fagnandi....
Óskar Arnórsson, 16.7.2012 kl. 08:16
Það er alveg rétt hjá þér Óskar að gestrisni Íslendinga er aðallega til þeirra sem eiga peninga. Ég hef verið að bera saman, frá hvaða löndum þeir/þær koma og hins vegar hvernig er það land. Yfirleitt eru þetta frá löndum þar sem stjórnarfar er ekki af bestu gerð og menntun er mjög ábótavant. Ég notast við: http://www.foreignpolicy.com/articles/2012/06/18/postcards_from_hell_2012?page=0,0 Er ekki búinn að klára mína.
Ómar Gíslason, 16.7.2012 kl. 08:53
Óskar, ef menn koma hingað til að leita hælis, hvers vegna reyna þeir þá að komast til annarra landa????? Á þá ekki bara að leifa þeim að fara????? Og þessar "pyntingar" sem þú talar um eru bara það ferli sem umsókn þeirra fer í á meðan eru þeir á gistiheimili og á meðan fá þeir u.þb. 200.000 á mánuði sem er meira en öryrkjar og atvinnulausir hér á landi fá. Þetta er ekkert fimm stjörnu hótel sem þeir eru á, kannski finnst þér það pynting, ættti kannski að pakka þeim inn í bómull og breiða yfir þá og kyssa góða nótt áður en þeir fara að sofa???? Það tekur allt of langan tíma að afgreiða umsókn hvers og eins um hæli, um það held ég að við séum alveg sammála en minn punktur er sá að ef menn vilja ekki vera hérna þá á að senda þá í burtu og málið er á enda......
Jóhann Elíasson, 16.7.2012 kl. 10:51
Rétt sagt Jóhann
Ómar Gíslason, 16.7.2012 kl. 11:04
Jóhann! Farðu bara í heimsókn og kynntu þér þessi mál. Ég hef unnið árum saman með flóttafólk og fjöldin er svo lítill á Íslandi að þetta er bara leikarskapur þessi biðprócess. Flóttamönnum líður stundum svo illa að þeir vilja frekar komast til meginlandsins heldur enn að þola þetta steindauða land eins og margir upplifa það.
Þegar flóttamenn sem hafa setið aðgerðalausir árum saman og meiga ekki hreyfa sig samkvæmt lögum, skiptir engu máli hvort þeir fá lítin eða mikin pening. Ég veit ekki hvað flóttamaður fær á Íslandi enn þeir fá engar 200 þúsund í vasan. Þú ert kanski að reikna samanlagðan kostnað við hvern flóttamann. Enn þú mátt gjarna leiðrétta mig og setja raunhæfar tölur fra.
Auðvitað á greiða götu þeirra sem eru orðnir svo þjáðir af einangrunaráhrifum þeim sem allir fá sem koma til landsins sem flóttamenn! Bara kaupa miða í einum grænum og eitt málið er afgreitt. Enn það þarf að vekja steinsofandi Útlendingastofnun úr þessum "þyrnirósasvefni" eða "kerfistransi" sýnum eða skaffa starfsfólk sem nennir þessu.
Kerfið er alveg nógu ömurlegt, leiðinlegt og ósanngjarnt þó það sé ekki notað á fólk sem þarf á alvöru aðstoð að halda. Það vantar ráðgjöf, traumameðferð, sálfræðiaðstoð og samskiptaaðstoð fyrir þetta fólk. Flestir af þessu fólki á alla sína fjölskyldu erlendis og vill reyna að ná sambandi við hana þegar það sjálft er komið í skjól.
Óskar Arnórsson, 16.7.2012 kl. 20:42
Ég þarf ekkert að fara í heimsókn, ég bý rétt hjá gistiheimilinu að Fitjum og ég veit nokkuð mikið meira um þeirra mál en þú. Þeir fá víst 200 þúsund á mánuði, þú þarft bara að kynna þér þessi mál betur áður en þú ferð að bulla um hluti sem þú veist greinilega ekkert um. Útlendinastofnun vinnur ágætis vinnu miðað við það fjármagn sem hún hefur úr að moða og að halda því fram að þeir sem vinna að þessum málum NENNI því ekki, er í hæsta máta ósmekklegt og kannski sýnir það hversu þekkingu þinni er ábótavant og hversu mikill "rasisti" þú ert. Já, ég sagði rasisti því það er ekkert annað en rasismi að sjá aðeins EINA hlið á málunum............
Jóhann Elíasson, 16.7.2012 kl. 22:31
Þú mátt alveg vita meira um þessi mál Jóhann, ég er ekki að keppa við þig neitt. Þetta segir Mannréttindaskrifstofa Íslands um "flóttamannastrauminn" til Íslands:
"Ísland hefur frá árinu 1956 tekið á móti 480 flóttamönnum sem komið hafa á vegum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, s.k. kvótaflóttamönnum. Stærsti hópurinn kom frá Ungverjalandi árið 1956, 52 einstaklingar en flestir hafa komið frá löndum fyrrum Júgóslavíu, 32 árið 1959 en alls 223 á árabilinu 1996-2005. Þrír hópar komu frá Víetnam á árunum 1979, 1990 og 1991, alls 94 manns. Tuttugu og sex einstaklingar komu frá Póllandi árið 1982 og árið 2005 komu tveir hópar, 24 konur og börn frá Kólumbíu og sjö manna fjölskylda frá Kosovó. Árið 2008 komu 29 einstaklingar frá Palestínu, átta konur og 21 kona. Tekið hefur verið á móti flóttafólki á hverju ári frá 1996, að árunum 2002 og 2004 undanskildum."
Það vantar yfirlit yfir tölur frá síðastu árum. Alla vega vil ég leggja sérstaka áherslu á það sem ég sagði hérna að ofan svo það fari ekki milli mála að Íslenkir starfsmenn og það á sérstaklega við þá sem stjórna málum, að þeir NENNA þessu ekki og sjá þessi mál aðeins til að upphefja sjálfan sig á kostnað annara. Leti og ómennska þeirra íslendinga sem vinna í þessum málum opinberlega, og að sjálfsögðu mörgum öðrum málum sem snúa að allskonar innanríkismálum sem fátækt, óstjórn í bankamálum og þess háttar, hefur ekkert með rasisma að gera né er það ósmekklegt að benda á það.
Ég er bara að segja það sama sem þúsundir íslendinga hafa sagt árum saman og ekkert hefur breyst. Þú virðist ekki hafa áhuga á að letihaugar kerfissins fari að hreyfa sig hraðar. ég veit alveg nóg um þessi mál bæði á Íslandi og á öðrum Norðurlöndum til að vita hvað ég er að tala um. Ég er ekki búin að fá þessar 200 þús staðfestar.
Andaðu síðan bara með nefinu Jóhann, þú öðlast ekki þekkingu á málum flóttamanna með að búa í næsta húsi eða tala um málið yfir kaffibolla. Það krefst meira enn það. Rasismi er algengur á Íslandi og það þarf að kenna fólki að hætta að vera rasistar...vonandi fá flótta menn þessi 200 þús og það er athyglisvert að margir vilja samt flýja land...
Óskar Arnórsson, 17.7.2012 kl. 11:01
Einu alvöru flóttarmenn sem við íslendingar höfum tekið á móti eru þeir sem við höfum sótt í raunverulegar flóttamannabúðir. Þeir einstaklingar og fjölskyldur sem þar eru, eru raunverulegir flóttarmenn.
En þessir svokölluðu flóttarmenn sem kaupa sér dýran flugmiða til Íslands eru það flóttarmenn? Nei það er kannski hægt að segja að þeir eru á launum sem flóttarmenn og eyðileggja um leið vanda flóttarmanna í flóttarmannabúðum.
Ómar Gíslason, 17.7.2012 kl. 11:45
Gleymdi einu að skoða hvað kostar að kaupa flugmiða til Íslands miðað við meðallaun í því landi sem viðkomandi kemur frá. Dæmi: flugmiði cirka $240 >> Ef hans land er Anglóla þá eru meðallaun á dag $2 það tekur því viðkomandi 120 daga bara að safna fyrir farinu. Hvaðan koma því þeir peningar?
Mín Niðurstaða er:
Við íslendingar eigum að gera það sem við best höfum gert að fara í raunverulegar flóttamannabúðir og gefa þeim nýtt tækifæri til að hefja nýtt líf í nýju landi. Þetta er okkar besti árangur og við getum unnið með þeim að byggja sig upp eins og gert var á Akranesi.
Ómar Gíslason, 17.7.2012 kl. 12:02
Íslendingar eiga bara að haga sér eins og siðað fólk þegar þessur örfáu flóttamenn koma hingað. Yfirvöld eiga ekkert með að líta á 10 hræður eins og um 1000 manns sé um að ræða. Það eru fleiri starfsmenn sem vinna við flóttamenn enn það eru flóttamenn...
Ísland gæti tekið við endalaust af flóttafólki. Enn meðan ástandið á landinu að Íslendingar sjálfir flyja þaðan vegna óstjórnar og ringulreiðar Ríkissins, verður langt þangað til alvöru flóttamannastraumur berst til Íslands...
Óskar Arnórsson, 17.7.2012 kl. 19:48
Óskar þú er bara bullari og veist ekkert hvað þú ert að segja!! Þegar þú talar um einhverjar 10 hræður þá hlítur að vera eitthvað út í kaffinu hjá þér. Útlendingastofnun er því að gera frábæra hluti en bullar eins og þú sem drullar á allt og alla geta bara átt sig.
Því mótteknar umsóknir 2006 til og með 2009 eru: 2006: 16.651 ums. 2007: 17.408 ums; 2008: 9.407 ums og 2009 eru það 3.821 Samtals á þessum árum eru mótteknar umsóknir 47.287 sjá skýrslu. Það er hreinlega kraftaverk að Útlendingastofnun geti hreinlega tekið á móti öllum þessum fjölda. http://www.utl.is/images/stories/Mott.ums.pdf
Útgefin dvalarleyfi frá 1990 til og með 2009 sjá viðhengi http://www.utl.is/images/stories/utg._dvl.pdf
Ómar Gíslason, 17.7.2012 kl. 21:12
Þetta eru ægilega flottar skýrslur sem þú ert að sýna Ómar. Skýrslur sem Útlendingastofnun semur sjálf í öllum regnbogas litum og þú kannt ekki að lesa úr. Þú ert nú meiri sérfræðingurinn og blanda saman gjörólikum hlutum. Þú ættir kanski að fá þér kaffibolla og sjá hvort þý skýrist eitthvað.. ;)
Það breytir mér ekkert hvað þú kallar mig eða hvað þér finnst. "10 hræður sem er komið fram við eins og þeir væru 1000 manns" er metafor sem ég nota af því ég var ekki með tölurnar nákvæmar fyrir framan mig. Það er kanski fyrir ofan þinn skilning og þetta snýst ekkert um neitt bull. Útlendingastofnun er að verða eins og reglugerðarfarganið í Svíþjóð þar sem menn fá hjartaáfall á biðstofunni meðan læknar og starfsfólk er að setja plástur á fullorðin mann sem var á undan honum í röðinni. Það skeði raunverulega og var alveg ómögulegt að koma starfsfólkinu á neyðarþjónustunni í skilning um ástandið. Allir á biðstofunni sá hvers kyns var og reyndu án árangurs að vekja athygli á þessum hjartveika manni. Hann dó með biðstofu miðan í hendinni ...
Ef nota á alvöru tölur eru notaðar þá auka menn tölurnar í höfðinu á sér þegar þeir tala. Og það gerir þú sem talar um að aðrir séu að bulla. Það er ekkert að kaffinu mínu Ómar og Útlendingastofnun hefur aldrei gert nein kraftaverk. Þó þeir gætu það myndu þeir ekki nenna því.
Kerfið á Íslandi er fullt af áhugalausu og húðlötu fólki, ekki bara Útlendingastofnun, heldur um allt og verður verra með hverju árinu. Og ef þú ert einn af þessum kerfiskörlum þá skora ég á þig að kíkja í kringum þig og virkilega skoða hvað er í gangi. Hér eru réttar alvörutölur og ekki blandaðar með "Umsóknir um Dvalarleyfi" sem kemur málinu ekkert við ef þú ert að tala um flóttamenn á annað borð...
"Samkvæmt tölum frá Flóttamannastofnun SÞ sem sagðar eru frá því í ársbyrjun 2010 voru flóttamenn á Íslandi 62 og á landinu voru 22 hælisleitendur. Við þetta bætast 133 einstaklingar án ríkisfangs. Hér var því um 217 einstaklinga að ræða í heild." Tekið úr skýsrlum frá Íslandi til SÞ.
Talan er allnokkuð hærri hjá frændum okkar Svíum. Þar eru flóttamenn sagðir 81.356 talsins, samkvæmt sömu heimild, hælisleitendur 18.953 og fólk án ríkisfangs 7.758. Alls 108.067.
Og þar sem ég bý í Svíþjóð og er í kringum þessi mál dagsdaglega á löngum tímabilum þá má ekki reikna með fólki sem sækir um dvalarleyfi á venjulegan hátt og flytur síðan til landsins ef það fær leyfi. Andúð Íslendinga á útlendingum vex með hverju ári og þá sér í lagi vegna þess að ákveðin smá hópur útlendinga stunda afbrot í landinu. þannig er það líka á öðrum Norðurlöndum og hlutfallið miklu hærra.
Ég hef hjálpað útlendingum erlendis frá að sækja um dvalarleyfi sem þú kallar flóttamenn og styður með skýrslu sem kemur málinu nákvæmlega ekkert við. Reyndu að vera skýr og ekki ekki misskilja þetta mál Ómar. Það er nóg af svoleiðis fólki að vinna með þessi mál á Íslandi sem skilur ekki þennan mun... það vinna fleiri á Útlendingastofnun og í kringum flóttamenn enn fjöldi flóttamanna sem kemur! Er þetta ekki alveg skýrt?...
Óskar Arnórsson, 17.7.2012 kl. 21:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.