Hin frábæri LOFTBÍLL

Mér hefur alltaf fundist gaman að fylgjast með framförum. En framfarir á bílum sem nota annað en bensín og dísel hafa nú ekki verið á miklum hraða, fyrr en nýverið. Mér hefur dottið í hvort þau fyrirtæki sem dæla olíunni upp hafa stjórnað því? Án þess að vita það nokkuð.

En sem betur fer er hér að verða mikil breyting og maðurinn er farinn að virkja hugmyndaaflið og rannsaka og skoða hvað best er að gera. Það sem mest hefur verið rætt um er rafmagnsbíll, vetnisbíll, eitthvað hefur Norskt fyrirtæki verið með töflur sem þú setur í tankinn í þróun. Svo er alltaf spurning hvað verður ofan á.

Eitt af þeim fyrirtækjum sem hefur skotið upp kolli er hönnun á bíll sem gengur fyrir þrýstilofti, sem mér fyrnst alveg frábær hugmynd hér fyrir neðan sjáið þið myndband frá youtube. Hann var fyrst til 1996 og hefur verið í vinnslu síðan. Hugsið ykkur að bíll sem gengur fyrir sama lofti og við öndum að okkur en geymt í kúti í bílnum. Það eina sem þarf að gera er að tengja við kútinn og fylla hann sem tekur miklu skemmri tíma en rafmagnsbíll! Og auk þess miklu ódýrari

 Viðbót gleymdi að setja heimasíðu fyrirtækisins: http://www.mdi.lu/english/

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Halldórsson

 Þessir loftbílar eru í raun rafbílar og er þá lofttankurinn orkugeymir .Bíð spenntur eftir þróuninni þessum loftbílum.Sennilega þarftu bara rafmagnstengil því með því að venda vélinni hlýtur hún að virka sem loftpressa ef rafmótor er til staðar,veit það þó ekki.. Rafgeymar eru alltaf  erfitt  umhverfismál .Bendi á grein á vefsíðu Leó M. Jónssonar http://www.leoemm.com/rafbilar.htm  ... enn sem komið er eru notaðar nikkel-Cadmium-rafhlöður með yfirflæddum sellum sem eru bara hefðbundnir rafgeymar  eða mjög  dýrar endingarbetri rafhlöður (Ni-MH) Förgun er alltaf vandamál .Ég býð spenntur.Mín skoðun er að enn sem komið er er góð díselvél það skásta enn sem komið er,hægt að ná eyðslunni niður í 4 lítra /100 km.

Hörður Halldórsson, 19.2.2010 kl. 22:06

2 Smámynd: Ómar Gíslason

Mér finnst hann alveg stórsniðugur og bíð spenntur yfir þessu

Ómar Gíslason, 19.2.2010 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband